Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 8 days
Jæja þá er komið að því! Hin árlega grillveisla verður í kvöld!!!
Það er búið að rigna í nokkra daga og hef ég verið smá áhyggjufull yfir því hvernig veðrið yrði í dag. Í skýn sólin :) :) :) :) Það er reyndar smá vindur en það gerir ekkert til. Íslendingar eiga að vera vanir smá golu ;)
Annars er allt gott að frétta. Hafrún og Hildur Kristín voru í heimsókn síðustu helgi. Þær fóru einar til Osló á föstudeginum. Á laugardeginum var farið til Svinesund í Sverige og verslað smá. Sunnudaginn þá voru Ósk og Íris Rós að dansa á danssýningu skólans. Þeim fannst ekkert smá gaman! Þar sem þær eru í sitthvorum aldurshópnum þá voru foreldrarnir frá 11-15:30 að horfa á krakka dansa ;)
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 18 days
Ósk missti sína 7 tönn um daginn. Ætlaði hún sko að komast að því hvernig tannálfurinn liti út! Hún batt spotta í hurðina og þaðan í skúffuna í fataskápnum og þaðan í loftræstigatið á veggnum fyrir ofan rúmið hennar. Hugmyndin var að er hurðin myndi opnast þá myndi skúffan dragast út og lenda á gólfinu og Ósk myndi vakna við hávaðann!!! Því miður þá var tannálfurinn svo klár að hann komst í tönnina án þess að valda hávaða.
Ég tók mynd af þessu og kemur hún síðar ;)
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 24 days
Ósk er farin að vera duglegri að lesa. Hún er farin að lesa allt sem hún kemst yfir.
Hún hefur 2svar verið að lesa fyrir skólann er ég er að tala við mömmu og pabba á skype og hefur hún þá þýtt jafn óðum yfir á íslensku fyrir þau það sem hún er að lesa. Henni finnst það ekkert mál að þýða norskann teksta yfir á íslensku. Hún hefur greinilega miklu betri orðaforða og skilning á íslensku en móðir hennar hélt ;)
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað about 1 month
Ég bakaði súkkulaðiköku að beiðni Írisar Rósar og muffins að ósk Óskar. Ósk var með gubbupestina í gær og því heima í dag. Þegar súkkulaðikakan var tilbúin setti ég köku og rjóma á 2 diska og sagði gjörið svo vel við stelpurnar. Ósk vildi ekki súkkulaðiköku, hún vildi bara muffins þannig að Íris Rós tók báða diskana til sín og tilkynnti að hún YRÐI að borða báðar kökurnar ;) Það er sko ekkert látið fara til spillis sem gott er á þessu heimili ;)
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 2 months
Það er mjög fyndið að fylgjast með stelpunum tala íslensku. Orðin sem þær kunna læra þær af okkur og er það mjög greinilegt! ;)
Við foreldrarnir þurfum greinilega að fara að passa okkur hvað við segjum og hvaða orð við notum er við erum að tala. Verðum greinilega að fara að tala fjölbreytari íslensku ;)
Ég bjó til súkkulaðimousse um daginn og fékk Ósk að smakka og fannst henni þetta gott og vildi helst fá meira. Hún varð að bíða þangað til eftir kvöldmat. Er komið var að eftirréttnum þá vildi Ósk ekki nema pínu smakk og sagðist verða óglatt ef hún borðaði meira. Íris Rós borðaði allan sinn skamt! Hún fékk svo meira daginn eftir. Það er sko greinilegt að Íris Rós er dóttir mömmu sinnar en Ósk er dóttir pabba síns ;)
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 2 months
Er stepurnar voru búnar í baði í gærkvöldi ákvað ég að setja fléttu í hárið hjá Ósk. Ósk hefur verið að tala um það undanfarna daga að hún vilji fá meiri krullur í hárið. Krullurnar sem hún sé með séu ekki nóg.
Íris Rós kom svo hlaupandi og bað líka um fléttu því hún vildi fá krullur einsog Ósk. Ósk tilkynnti systur sinni það að hún (Íris Rós)væri fædd með slétt hár einsog mamma en hún (Ósk) væri sko fædd með krullur! Ég á von á því að þetta umræðuefni þeirra eigi eftir að koma upp aftur og aftur og þá sérstaklega er þær ná unglingaaldri. Held þær muni öfundi hvor aðra þá ;)
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 2 months
Við keyptum 6 nýja stóla við nýja borðstofuborðið. Komu 2 stólar í einum pappakassa (frekar stórir kassar). Stelpurnar bjuggu til húsalengju úr pappakössunum. Opnuðu báða endana og settu þá eftir hvor öðrum. Er þær áttu að fara að sofa þá byrjuðu þær að búa um sig í kössunum. Móðirin vildi nú ekki leyfa þeim að sofa í pappakössunum í stofunni. Var móðirin nú ekkert mjög skemmtileg.
Íris Rós (með grátkökkul í röddinni): " Þegar ég verð stór þá ætla ég sko að leyfa mínum börnum að sofa í pappakassa! Ég ætla ekki að vera vond einsog mamma"
Höfundur : Trausti Þór Jóhannsson, skrifað 3 months
Ég var að skoða tölfræði varðandi heimasíðuna, og mér til mikillar ánægju, þá er næstum því enginn að nota Internet Explorer.
Þetta þýðir að ég get bætt síðuna mína töluvert og fært hana inn í árið 2012. Ég er með hugmyndir um að gera síðuna að svokallaðri single page app, eins og gmail og nokkrir hlutar af facebook eru. Þetta hefur lítil áhrif á þig, lesandi góður, nema að síðan verður mun hraðari og öll þægilegri í notkun. En eins og alltaf þá eru þessar breytingar gerðar mín vegna, ég vil alltaf að síðan mín sé flott og þægileg.
Einnig er það mjög gaman að sjá á allri tölfræðinni, að fólk les lítið póstana, kannski þeir séu lesnir á forsíðunni, en fólk skoðar myndirnar mjög mikið. Mér finnst rétt að benda á að það eru myndir á síðunni frá 2003, líf okkar síðustu 9 ár er vel við haldið hérna. Að vísu hefur verið lítið uppfært núna í vetur, en við munum kippa því í liðinn.
Höfundur : Trausti Þór Jóhannsson, skrifað 3 months
Á morgun, sunnudag mun fjölskyldan fara út á flugvöll og fljúga til Nice í Frakklandi. Enginn snjór, engar mínus gráður.
Ég get ekki beðið.
Eitt þó, það lítur ekki út fyrir að vera internet í húsinu, aaaahhhh
Höfundur : Trausti Þór Jóhannsson, skrifað 3 months
Á sama deginum, með kannski 1 klukkutíma millibili fékk ég símtöl þar sem fólk vildi koma í heimsókn í Maí. Mjög ánægjulegt. Núna er afmælis helgin mín og hvítasunnan upptekinn.
Núna er bara fyrstur kemur, fyrstur fær, endilega byrja að panta, helgar gistingarnar eru að renna út eins og heitar lummur.