Logo

Velkomin heim til okkar



RSS feeds

Höfundur : Trausti Þór Jóhannsson, skrifað about 1 month
Jæja þá er síðan loksins komin með rss feeds aftur.

Það eru feed fyrir nýjustu fréttir og nýjustu myndir.

Ef þið endilega viljið eitthvað meira, skrifaðu þá hérna fyrir neðan

Þessi frétt er með 3 komment



Dýralíf

Höfundur : Trausti Þór Jóhannsson, skrifað about 1 month
Ég hef alltaf ýtt undir dýraáhuga hjá stelpunum, horfi oft á Animal Planet HD með þeim, útskýri hvað dýrin heita og gera og hvar þau búa, stundum sýnt það á hnettinum. Þær fá alltaf að elta ketti og klappa hundum, horfa á kindur og kýr svo eitthvað sé nefnt.

Eitt sinn vorum við að horfa á Austin Stevens, ljósmyndara sem er svaka flinkur að taka myndir af dýrum mjög nálægt, var t.d. um 1 meter frá nashyrningum (fyrir slysni). Einn þátturinn var um mistök og var sýnt hvar slöngur bitu hann 4 sinnum. Þetta hræddi eitthvað stelpurnar svo við höfum tekið smá extra vinnu í að útskýra fyrir þeim slöngur og annað eins. Þær sáu slöngu á leiðinni frá leikskólanum án þess að verða neitt hræddar. Svo hafa þær líka séð fleiri þætti með Austin og séð hvernig hann var ekki bitinn.

Þegar við fórum með þær í dýra garðinn þá fengu þær að klappa alvöru slöngu og sjá margar slöngur í slönguhúsinu. Þær heimtuðu svo báðar að fá slöngu leikföng í dýragarðinum. Þar sáu þær mikið af skrýtnum dýrum og þekkti Ósk mikið af þeim.

Þar sáu þær líka ljótu hliðina á lífríkinu er einn svanur ætlaði svo sannarlega að taka lífið af einni önd með því að sitja ofan á henni og þrýsta höfði hennar ofan í. Þvílíkur baráttu vilji hjá grey öndinni því oft heyrði maður í kringum sig að þessu væru lokið og hafði öndin þá verið undir vatni í töluverðann tíma og svo skaut hausnum upp. Ég tók nokkra steina og greinar og reyndi að fá athygli en viljinn til að taka lífið af öndinni var svo mikill að þó ég fyrir slysni hitti beint í svaninn þá var eins og hann tæki ekki eftir því, hefði ég fengið þetta í mig hefði ég vel tekið eftir því. Planið var að þora að fara yfir girðinguna með stóra grein og ýtá í svaninn, en það fór gaur yfir á undan með því sama. Hann lét rigna sandi yfir svaninn án árangurs og tók hann smá tíma í að fá athygli og sá svanurinn að sér þegar maðurinn tók trjágrein og náði að ýta í hann.
Eitt sem kom mér á óvart var að allir hinir fuglarnir virtust mjög æstir yfir þessu og fór ekki á milli mála að þeir tóku þetta mjög nærri sér.

Einn apinn í einu búrinu hékk á því og leyfði fólki að klappa sér (þó slíkt væri bannað). Ég tók tímann í að sýna stelpunum hversu líkur hann væri okkur, með augu og nef og tennur og tungu. Skoðuðum og klöppuðum honum á höndunum og skoðuðum lappirnar. Það vinnur einn trúaður á leikskólanum og Ósk var eitthvað að spyrja pabba um þetta og fékk hún þróunarkenninguna útskýrða, eins langt og það nær. En eftir að hafa grannskoðað apann sem er frændi þeirra í móðurætt (þær voru alveg sammála því) þá held ég að þær verði þessari hálvita sköpunar kenningu ekki að bráð.

Ég held að það sé varla til skemmtilegri tími hjá foreldri er maður er að útskýra eitthvað fyrir börnum sínum og þau hlusta bara og móttaka og spyrja mann 10.000 spurninga, þær eru eins og svampur sem maður reynir að bleyta. Mjög skemmtilegt og gefandi.

Svo Animal Planet HD ásamt Austin Stevens og dýragarðurinn eru mjög góð mál og sköpunar kenningin og svanir heimskir og vondir

Þessi frétt er með 0 komment



W3C Validated

Höfundur : Trausti Þór Jóhannsson, skrifað 2 months
W3C eru með tól sem fara yfir heimasíður, hversu vel þeir fara eftir stöðlum, hversu vel heimasíðan er gerð með tilliti til reglna varðandi heimasíður. Þeir fóru yfir quarksbar.net og fundu ekkert að, ekki 1 hlut sem ekki er nákvæmlega eftir stöðlum, það var ekki einu sinni 1 athugasemd. Hverjir eru w3c, hér að neðan er texti sem ég tók af wikipedia.

World Wide Web Consortium (W3C) eru alþjóðleg samtök þar sem félagasamtök, fastráðið starfsfólk og almenningur vinna saman að því að búa til staðla fyrir Veraldarvefinn. Markmið W3C er: "Að leiða veraldarvefinn til sinnar allra bestu getu með því að hanna samskiptareglur og viðmiðunarreglur sem tryggja langtímavöxt Vefsins". W3C hvetur einnig til menntunar og útbreiðslu, þróar hugbúnað og þjónar þeim tilgangi að vera opinn vettvangur fyrir umræður um Vefinn. Samtökunum er stjórnað af Tim Berners-Lee, sem upphaflega bjó Veraldarvefinn til og var upphafsmaður URL (Uniform Resource Locator), HTTP (HyperText Transfer Protocol) og HTML (HyperText Markup Language) útfærslnanna, sem eru uppstaðan í þeirri tækni sem heldur Vefnum gangandi.



Þessi frétt er með 0 komment



Sumarfríið búið

Höfundur : Trausti Þór Jóhannsson, skrifað 2 months
Elsa Þóra og stepurnar voru heima hjá sér síðustu 3 vikur. Við fengum alveg frábært veður nær allan tímann og ekki hægt að biðja um meira. Ótrúlegt en satt þá var ekkert grillað alltof mikið en endapunkturinn var meiriháttar T-bone steik, einnig þekkt sem Tomma og Jenna steik, þetta er eins og steikin sem þeir eru alltaf að slást um við hundinn sérstaklega, með stórt T bein í gegnum hana. Þetta tókst svakalega vel með bernese sósu.

En núna er alvaran tekin við, skólagangan hjá stelpunum og vinnan hjá Elsu Þóru og kannski núna get ég gert eitthvað á skrifstofunni minni sem er við hliðina á sjónvarpinu :) því ég var ekki í sumarfríi.

En lokin á sumarfríinu er að ég og Ósk erum kvefuð og með slæmann háls, hóst hóst

Þessi frétt er með 0 komment



Þá er Bóel farin snuff snuff

Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 3 months
Bóel fór í kvöld :( :( Ósk kom grátandi heim eftir að hafa skutlað Bóel út á flugvöll. Það voru 2 ár síðan við sáum hana síðast og vor endurfundirnir miklir! ( ágúst 2008)
Ósk vakti Bóel einn morguninn og var Bóel ekki alveg til í að vakna. Ósk lofaði Bóel því að hún skyldi ekki vekja hana aftur og fór Ósk því eftir það niður og lagðist í rúmið hjá Bóel og beið þangað til hún vaknaði ;) Stundum var biðin löng og fór Ósk þá að pota í Bóel eða skoða hana og vaknaði Bóel því. Dröslaðist Bóel þá á fætur og kveikti á sjónvarpinu og fór aftur uppí ;) Íris Rós svaf lengi einsog hún gerir alltaf.
Það er búið að fara 2svar út á vatn og busla. Farið í Tusenfryd. Farið á 17 júní hátíðarhöld í Osló og borðaður góður matur.
Vonandi náum við að hitta Bóel aftur innan árs :) :)

Þessi frétt er með 2 komment



Lysdammen og Tusenfryd

Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 3 months
Bóel kom til okkar á miðvikudaginn. Svaka fjör! Stelpurnar hlupu í fangið á henni á flugvellinum, frænkan bráðnaði alveg ;)

Í gær (fimmtudag) var farið út á vatnið í skóginum. Stelpurnar fengu armkúta og busluðu í köldu vatninu í hátt í 3 tíma! Það var kalt í vatninu en þær létu það ekki á sig fá heldur fóru alltaf lengra og lengra. Þær systur voru sko ekkert hræddar við vatnið. Það var ekki auðvelt að fá þær heim ;)

Í dag (föstudag) fórum við svo í Tusenfryd. Stelpurnar eru spennufíklar!!! Þær vildu fara í öll tækin og minnst 2svar í hvert! Mamman slapp voða vel en þurfti að fara í 2 tæki og var orðið frekar mikið bumbult og illt í hausnum á eftir. Bóel þurfti að fara 2 ferði í kolkrabbann, eina með hvora stelpu. (mamman gat ekki meira) Ósk hafði spurt hana hvort hún gæti ekki farið í 2 ferðir með hvora en Bóel hafði tilkynnt að þá myndi hún æla! ;) Það kom rigning af og til í dag en stelpunum var sko alveg sama, þær fóru bara í regnslána sína og héldu áfram að suða um að fara í tækin ;)

Þessi frétt er með 0 komment



3 ára prinsessa!

Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 3 months
Íris Rós er 3ja ára í dag!!! :) :) :) Fyrir 3 árum þá var í kringum 30 stiga hiti úti og ekki gaman að vera ólétt! ;) Það versta var að það þurfti að slökkva á viftunum er fæðingin byrjaði svo barninu yrði ekki kalt!! Það var öllum sama um grey mömmuna sem var að DREPAST úr hita! Í dag 3 árum seinna þá er grenjandi rigning og smá vindur, djö hefði ég verið til í að hafa þetta veður fyrir 3 árum síðan ;)

Ég og Trausti Þór vorum vakandi fram á nótt við að baka (ég að baka og Trausti Þór að vaska upp) Ég stólaði á að Ósk myndi vekja mig í kringum 8 einsog venjulega og setti því ekki vekjaraklukkuna í gang en NEI! Ég heryði Írisi Rós vekja Ósk rúmlega 9:30!!! Þannig að núna er mamman svaka stressuð því hún þarf að klára að taka til og baka nokkrar muffins!

Þessi frétt er með 6 komment



Læknir og meira

Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 3 months
Stelpurnar fóru til astmalæknisins á miðvikudaginn. Ósk hefur ekki notað úðara í nokkrar vikur en þarf að byrja aftur. Hún hóstar ekkert og er í góðu formi en það er 20% munur á henni með og án úðara.
Íris Rós fékk fjólubláann úðara. Það er blanda af þeim bláa og appelsínugula. Íris Rós sat í fanginu mínu og spurði læknirinn hvort hún væri alltaf svona og ég sagði já og að hún væri oft í fanginu á fólkinu á leikskólanum. Hann vildi meina að úthaldið hennar væri ekki nógu gott og þyrfti því að fá sterkara meðal.

Á þriðjudaginn datt Íris Rós er hún var á leið UPP stigann! Hún náði að meiða sig rétt fyrir neðan munnvikið. Mamman móðursjúka hélt að þetta væri í gegn og var því send á læknavaktina í Lilleström en þar var fólk sem gat saumað. En mamman móðursjúka hafði vitlaust fyrir sér og var þetta bara djúpt sár sem fékk plástur!

Ég tók til í svefnhergberginu okkar Trausta í gær. Kommóðan var tekin út, tæmd alveg og sett niður í kjallara. Rimlarúmið var sett niður í kjallara ( það var tekið í sundur í fyrra sumar en aldrei farið með niður í kjallar þar sem það átti að breyta öllu þar)
Núna er svo mikið pláss í svefnherberginu að ég veit ekki hvað ég á að gera ;)

Plássleysi er eitthvað sem ég þjáist ekki af ;) ;) ;)

Ósk var voða þögul í morgun, hún er vön að hamast á mér þangað til ég gef henni morgunmat. Núna fékk ég að sofa í friði!?!?!? Hún var búin að blása upp sundlaugina, kútinn og boltann!!! Alveg alein!? Núna bíður hún efitr sólinni í sundbol eða bikiníi, alveg eftir því hvað passar hverja mínútuna ;) ;)
Ef einhver kemur með þá hugmynd að setja rimlarúmið aftur upp og koma með nýtt barn þá verður viðkomandi settur á bannslista!!!


Þessi frétt er með 1 komment



Hrakfallabálkur

Höfundur : Elsa Þóra Eggertsdóttir, skrifað 3 months
Íris Rós datt á leiðinni upp tröppurnar úr kjallaranum í dag. Annaðhvort fóru tennurnar í eða kartonblaðið sem hún hélt á eða hún hefur skollið á tröppuna. Mamman hringdi á læknastöðina til að ath hvort þau gætu saumað, þar var mömmunni bent á að fara á sjúkrahúsið í Lilleström. Ósk var skipað að klæða sig í föt (hún var í bikiníinu), mamman hljóp um allt hús til að loka gluggum og hurðum og slökkva á sjónvarpinu. Tekin voru með auka föt á Írisi Rós því hún var í sundbol!
Er við komum á spítalann þá var horft á sárið og tilkynnt að það væri nóg að setja límplástur. Við fengum með okkur aukaplástur.

Von mömmunar að dóttirin væri ekki með plástur, marbletti eða stór sár er hún ætti afmæli varð að engu í dag :(

Núna er búið að sauma báðar stelpurnar og báðar hafa fengið límplástur! Ekki slæmt!?!?!?!?

Þessi frétt er með 4 komment



Nýjar myndir

Höfundur : Elsa Þóra Eggertsdóttir, skrifað 3 months
Ég setti inn slatta af myndum í gærkvöldi. Er búin með apríl og hálfan maí. Restin kemur kannski í kvöld eða næstu daga

Þessi frétt er með 0 komment



Tenglar
Nýjar myndir
  • Img_1817_thumb
  • Img_1814_thumb
  • Img_1811_thumb
  • Img_1810_thumb
  • Img_1808_thumb
Ýmsar myndir
  • Img_3223_thumb
  • Img_2839_thumb
  • Img_0571_thumb
  • Img_0796_thumb
  • Img_8386_thumb
Nýjustu fréttirnar
Nýjustu kommentin
Nýjustu myndir með kommentum
Img_1806_thumb
Vala
Já, heldur að þú komist nú ekki ansi langt með þetta;) Nema það eigi að fjölga þeim mun meir í hópnum ;) hehe
Img_4093_thumb
Img_1796_thumb

Jamm!
Img_1801_thumb
Elsa Thora
Ég tek thig til fyrirmyndar Vala og geri thad næst ;)
Img_1795_thumb
Elsa Þóra
Norðmenn kalla þetta líka Moreller. Þeir vija meina að kirsuber skiptist í nokkra flokka bla bla bla
Img_1785_thumb
Elsa Þóra
Ég ætla rétt að vona að listaverkin eftir þær verði mikilsvirði ;)
Img_6367_thumb
Sigrún Ásta
Nákvæmlega, áberandi hvað Ósk er orðin stór síðan þá :)
Img_1760_thumb
Sigrún Ásta
Hún er hokin af reynslu - með fæturna í hliðunum til að hægja á sér og lengja tímann fyrir myndatökur ;)

Valid XHTML 1.1