Höfundur : Elsa Þóra Eggertsdóttir, skrifað 3 months
Ég hef ekki getað sett inn myndir í margar vikur! Trausti var eitthvað að fikta við síðuna og eyðilagði allt. Eftir mikið tuð þá lagaði hann þetta loksins. Mun ég því eyða rigninardögunum í sumar í að setja inn myndir. Ég á fullt af myndum ;)
Ósk var lasin fyrir rúmri viku síðan. Hún var eitthvað að kvarta yfir eymslum í hálsinum og fékk að vera heima mið og fim því mamman var í fríi. Ósk heimtaði að Íris Rós væri heima líka svo hún gæti leikið við einhvern. Á föstudeginum var þeim svo hent í leikskólann aftur, engin náð og miskun á þessu heimili ;) Á laugardeginum vaknar hún svo með bólgin háls og eymsli. Mamman neiddist til að viðurkenna að barnið væri lasið og fékk tíma hjá læknavaktinni rétt eftir hádegi. Hún var með streptokokkar. Pensilín í nokkra daga ;)
Ég byrjaði í 3 vikna sumarfríi á föstudaginn :) :) :) :) :) Ekkert smá gaman! Við ætlum ekki að fara neitt sérstakt. Ef veður er gott þá verður farið í Tusenfryd, Amadeus dyrepark, námuna rétt hjá Minnesund og til Osló. Ef veðrið verður leiðinlegt þá verðum við heima eða finnum eitthvað skemmtilegt sem er innandyra :)
Höfundur : Trausti Þór Jóhannsson, skrifað 3 months
Jæja, í dag er kominn enn einn glænýr quarksbar.net.
(Nördatal fyrir neðan)
Frá því að þessi vefur fór í loftið árið 2003 sem keyrði á gamalli ferðavél í fataskáp heima hjá mér þá hefur vefsíðan verið keyrð á PHP. En núna nennti ég loksins að gera hana í Ruby on Rails.
Ruby on Rails er ramma kerfi (framework) sem danskur viðskiptafræði nemandi skrifaði áður en hann varð milljónamæringur. Þetta kerfi notast við japanskt forritunarmál sem heitir Ruby og er algjör draumur í notkun fyrir forritara.
Þú tekur þó fljótlega eftir því að það vantar margar aðgerðir sem voru í gamla kerfinu, en ekki örvænta. Þetta er allt að koma ásamt fleiru.
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 3 months
Á laugardaginn var farið í smá verslunarleiðangur og keypt hjól handa Írisi Rós. Henni finnst svo gaman að hjóla að það er erfitt að fá hana inn! Ósk vildi halda við bakið á henni en Íris Rós vildi sko ekki aðstoð! Það þurfti sko ekki að aðstoða hana, hún gat sko hjólað alein!!! Hún er mjög dugleg að hjóla, þarf að verða aðeins sterkari í fótunum en þetta kemur hjá henni.
Við sjáum það alveg að við hefðum átt að kaupa svona lítið hjól fyrir Ósk í fyrra svo hún myndi þora meira. Hún er greinilega orðin meira varkárari með aldrinum. Íris Rós er það frökk að er hún dettur af hjólinu þá stendur hún upp og heldur áfram að hjóla. Ósk dettur skoðar sárið og vill plástur ef þess þarf og svo heldur hún áfram að hjóla.
Systurnar fóru í klippingu á föstudaginn, það var svo gaman! Þær sátu svo stiltar í stólnum og færðu hausin einsog hárgreiðslukonan bað þær um. Þær fengu svo fléttur með klemmu í. Ósk var búin að sitja í stólnum í ca 2 mín er hún spurði hvort hún fengi ekki bangsaklemmu einsog öll hin skiptin sem hún hefur verið klipt ;) Hún er mjög hógvær þessi elska
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 4 months
Í fyrra þá keypti ég og pabbi hjól á flóamarkaði handa Ósk, það var í stærri kantinum en barnið stækkar ;)
Í fyrra vildi hún ekkert hjóla sama hvað við reyndum. Í ár þá var ákveðið að hún skyldi hjóla!!! Hún er búin að reyna oft í ár en um leið og hún finnur að við sleppum henni þá hættir hún.
Í dag var hún greinilega tilbúin því er Trausti sleppti henni þá hélt hún áfram að hjóla. Hún hjólaði fram og til baka lengi! Núna er hún voða stolt af sjálfri sér og er byrjuð að plana hjólaferðir í götunni með nágrannastelpunni ;)
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 4 months
heitir Íris Rós 2 nöfnum en ég bara einu??????
Mammam: "Af því að þú ert alnafna hennar ömmu Ósk."
Nokkru seinna er komið fram og mömmunni tilkynnt að núna héti litla systir Íris Traustadóttir og væri með eitt nafn alveg einsog hún ;)
Höfundur : Montna móðirin , skrifað 4 months
Af því að ég get montað mig þá geri ég það :)
Var í foreldraviðtali um daginn fyrir báðar stelpurnar.
Íris Rós er að standa sig mjög vel á öllum sviðum, þroskast vel og er alveg tilbúin til að flytjast upp á stóru deildina. Hún hefði í rauninni alveg getað flutt upp strax eftir áramót en það var ekkert laust pláss. Ég er búin að ákveða að hún fari á sömu deild og Ósk er á. Þær verða því á sömu deild í 1 ár.
Ósk er líka að standa sig mjög vel, hefur mjög góðann og mikinn norskann orðaforða. Er í rauninni á undan mörgum sínum jafnöldrum sem eiga báða foreldra norska. Í haust byrjar hún svo í "forskóla" Öll börn sem eiga að byrja í skóla haustið 2011 hittast 1x í viku í 1 1/2 tíma á dag og læra. Þau læra stafina og hljóðin þeirra. Þau eru nokkur á leikskólanum sem eru forvitnari en önnur börn og verða þau í sér hóp, Ósk verður í þeim hóp :) :) ;) Starfsfólkið ætlar að búa til sér verkefni fyrir þennan hóp, eitthvað sem hæfir þeim og veitir þeim þá áskorun sem þau þurfa. Ég á ekki von á öðru en að Ósk muni verða mjög sátt en hún býður ennþá eftir því að verða 6 ára og byrja í skóla þessi dúlla.
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 4 months
Trausti: "Hvernig ferðu að því að verða svona skítug Ósk????"
Ósk: "Sko, þú þarft vatn..."
Höfundur : Trausti Þór, skrifað 5 months
Ég hef mikið spáð í afhverju maður er að halda úti þessari heimasíðu með ærnum tilkostnaði þegar facebook er ókeypis.
Málið er eiginlega það sama og með dagbækur. Hérna get ég skoðað alla söguna fram og tilbaka. Ég ræð sjálfur framsetningunni. En aðallega er málið að upplýsingarnar verða hérna áfram og drukkna ekki í öllu flóðinu. Hérna verðum við Elsa saman með að setja inn myndir og fréttir. Þetta er miklu einfaldara þó þetta sé ekki alveg eins þægilegt :)
Höfundur : Trausti Þór, skrifað 5 months
Síðasta föstudag var fjölskyldan send til Íslands í frí. Ég ætlaði að taka á því og vinna eins og berserkur allan tímann og éta mat sem venjulega er ekki á boðstólum hérna í húsinu. En auðvitað þurfti ég að fá einhverja pest og er núna fyrst að verða góður og er hitalaus.
Þá er bara að taka á þessu núna og vona að heilsan haldist.
Ég get ekki neitað því maður saknar fjölskyldunnar töluvert, en að sama skapi er fínt að vakna sjálfur á morgnana við eigin leik á móti því að vera sparkað í magann eða andlitið á manni og heimtað að fá morgunmat. Það heyrist aldrei "búin" um leið og ég er byrjaður að gera eitthvað eða búinn að koma mér vel fyrir. En samt er maður eitthvað aumingjalegur
Höfundur : Trausti Þór, skrifað 5 months
Almost 10 years ago I moved to a foreign country. I did not speak the language or anything to help me. When I moved my best friend had a 4 year old daughter which is getting her confirmation now. Most of my friends were single. One of my friend had a pregnant girlfriend and now today a father of 4 children. 2 years after I moved my younger brother made my grandmother into a great grandmother. I don't know much of my brothers kids or my best friends kids and they don't know my kids. Distances are sometimes great and sometimes much bigger than one things. I hardly know any kids my generation in my family and their kids. Sometimes you just get to much time time to think