Höfundur : Trausti Þór, skrifað 5 months
Fyrir tæpum 10 árum flutti ég út til útlanda. Þá átti besti vinur minn 4 ára stelpu sem er verið að ferma núna. Flestir vinir mínir voru single nema 1 sem var alveg á steypinum og er núna í dag 4 barna faðir. Bróðir minn gerði ömmu mína að langömmu langt á undan mér og á stórann strák í dag. Ég þekki lítið sem ekkert yngri systur hans eða hann sjálfann, Ævar þekkir lítið sem ekkert dætur mínar. Fjarlægðir eru oft miklu meiri en maður heldur, of óþarflega miklar. Ég þekki vart ættfólk mitt eða það mig
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 5 months
Vagninn sem var á leikskólanum var sóttur í dag!!! Íris Rós vill ekki sofa í vanginum lengur, hún vill í rauninni mjög sjaldan sofa á daginn á leikskólanum. Þannig að ég var vinsamlegast beðin um að taka vagninn með heim.
Íris Rós byrjar á sömu deild og Ósk í ágúst. Verða þær saman á deild í 1 ár.
Höfundur : Trausti Þór, skrifað 5 months
Þá er quarksbar vefurinn kominn á enn einn nýjann stað. Þetta er frekar mikið ferðalag sem vefurinn hefur farið í síðustu árin.
Þetta byrjaði allt saman á gamalli ferðatölvu sem var geymd í fataskáp í þáverandi tölvuherberginu mínu. Því næst fór vefurinn til dreamhost.com, var þar í þó nokkurn tíma, fór svo á slicehost.com og þar á eftir á rackspace.com.
Núna er quarksbar.net geymdur á sömu netþjónum og amazon.com vef verslunin notar, enda ætti fólk að taka eftir ágætis hraðamun núna.
Vona að fólki líki þetta því þessi vefur er að kosta ágætis pening á mánuði með yfir 20 GB af myndum og gögnum sem eru yfir hundrað megabæti, fyrir utan allri vinnunni á bak við vefinn sjálfann.
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 5 months
Ósk átti afmæli í gær og varð 5 ára! Hún fór á leikskólann í ca 4 tíma því hún er bún að vera slæm af astmanum undanfarið. Það var svaka stuð á leikskólanum og fékk hún Hello Kitty kórónu sem var búin að hanga á veggnum á leikskólanum í allavegana 2 vikur.
Er Trausti kom heim frá fundum í Osló þá var farið til Jessheim og í leikfangabúðina. Ósk fékk að velja hvað hún fengi í afmælisgjöf. Það fyrsta sem hún sá bar páskaegg pakkað inn í bleikann prinsessupappír. Það var erfitt að sannfæra hana um að hún fengi svona egg en mætti alveg velja eitthvað annað. Jújú það var labbað um og skoðað og að lokum þá endaði hún með Skellibjöllu kjól og eitthvað perludót með mynd af Skelliblöðru á kassanum ;) ;) ;)
Það er mjög erfitt að fá hana úr þessum kjól ;)
Íris Rós fékk líka pakka og fékk hún bleikann phony hest.
Eftir leikfangabúðina var keypt pizza á liðið. Mjög skemmtilegur dagur þar sem allir voru sáttir.
Aðalspurning Óskar núna er að vita hvenær hún verði 6 ára ;) Hún veit að er hún verður 6 ára þá missir hún tennur og fer í skóla. Hún vill í rauninni hoppa yfir 5 ára árið
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 6 months
og bara ca 3 mánuðir í næst törn!!
Það var vinkonu afmæli á laugardaginn, 10 stelpur samankomnar í einu húsí 3 tímai!?!?! Sem betur fer er húsið á 2 hæðum ;) Þetta gekk mjög vel. Byrjuðum á að gefa öllum pylsur og svo var farið að leika og horft á smá bíó, þá var komið að því að opna pakkana og borða köku og hlaup. Það er mjög fyndið að halda barnaafmæli í Noregi, allir mæta á réttum tíma! Afmæið byrjaði kl 12 og voru allar komnar kl 12:03, afmæið var svo búið kl 15 og voru þær frá leikskólanum farnar kl 15:03 og er ég ekki að ýkja.
Á sunnudaginn kom svo Marit og allt liðið. Baldur, Heiðbjört, Oddbjörg, Ragna Dögg, Ingi, Sigrid, Vidar, Garðar, Hrönn og dætur. Alveg nóg af fólki! Ég hafði vaknað klukkan 8 um morgunin til að baka fleiri kökur og vakti ég svo Trausta Þór rétt fyrir hádegi til að aðstoða mig. Hann valdi svo flóknar kökur úr brauð og kökubók hagkaups, þannig að hann fékk að þjást með mér. Er við vorum búin að baka fórum við á heimilissýningu og komum heim 5 á undan fyrstu gestunum. Var ég í eldhúsinu að búa til heita rétti á fullu ;)
Helgin var æði og vel heppnuð en við hjónin vorum sko alveg búin á því á sunndagskvöldinu! Það var sko farið snemma að sofa takk fyrir.
Húsið er ekki alveg búið en við þrifum slatta á föstudaginn. Ég á eftir að taka niður gardínurnar og þvo þær en ég er í rauninni að bíða eftir góðu veðri svo ég geti hent dóti út á svalirnar. Reyndar er snjórinn farinn af handriðinu þannig að ég ætti að geta sett dót út fljótlega. Sjáum til hvað ég geri á miðvikudaginn en þá á ég frí. Var í fríi í dag en ákvað að slappa af og sofa smá. Fyrsti frídagurinn minn í mjög margar vikur sem stelpurnar eru ekki heima og ekki heldur smiðirnir ;)
Höfundur : Trausti Þór, skrifað 6 months
Í nóvember 2009 þá hætti að vinna hjá VG og ákvað að fara út í sjálfstæðan rekstur. Ég stofnaði fyrirtæki sem heitir 305. Ég lenti í ákveðnu lúxus vandamáli. Það streymdu inn á mig atvinnutilboð og tækifæri svo ég guggnaði líka aðeins á sjálfstæða rekstrinum og fór að vinna hjá fyrirtæki sem sérhæfir sig í verkferlum með opnum hugbúnaði. En ég hafði eiginlega gert of góða grunn vinnu með sjálfstæða rekstrinum að ég fékk ekki frið og fékk nokkur verkefni sem ég ákvað að gera. Eitt leiðir að öðru og ég hætti núna um mánaðarmótin hjá fyrirtækinu og hélt áfram með að vera í eigin rekstri.
All þetta á meðan það er verið að endurbyggja allt húsið hjá manni, nýtt eldhús og stofa og gangur svo eitthvað sé talið fram. Húsmóðirin er doldið stressuð á þessu öllu saman, en fyrir einhverjar óskiljanlegar ástæður þá leyfir hún mér þetta.
Svo fór það að öll mín áhugasvið mættust, að vinna með Linux og Makka, ásamt því að forrita í Ruby on Rails og iPhone. Nokkrir viðskipta menn höfðu samband við mig í fyrra um að stofna fyrirtæki saman í kringum iPhone forritun með mig sem tæknistjóra. Þetta var mjög freystandi og ég hélt þessu volgu, sagði aldrei nei við þessu og bjó til eitt forrit á iPhone sem við settum inn á App Store hjá Apple (þeir einir meiga selja forrit fyrir iPhone).
Allt þetta gerðist í kringum áramótin, og ég gerði einnig annan vef fyrir viðskiptavin sem heitir
Fotofix.no og fékk líka skemmtilegt verkefni í vinnunni hjá Freecode. Mjög mikið að gerast og eitthvað varð að gefa eftir, heilsan, geðheilsan, hjónabandið eða eitthvað annað og af nógu er að taka.
Útúr öllu þessu kom þetta. Í gegnum 305 fyrirtækið kynntist ég grafískum hönnuði sem ég kom í kynni við iPhone viðskipa mennina og fór svo að við stofnuðum hlutafélagið Appy AS. Ég er tæknistjóri þessa fyrirtækis ásamt því að reka 305.
Þetta er feikigaman að vinna svona hjá sjálfum sér. Ég hef aldrei verið fylgjandi fyrirtækja pólitík eða verið svokallaður fyrirtækja maður (company man). Ég er alveg að dýrka þetta og kem sjálfum mér á óvart með að ég get unnið heima fyrir og hef agann til að vinna langt fram eftir. Ég er líka með aðstöðu og tækjabúnað hérna sem gerir lítið úr mun stærri fyrirtækjum.
Þetta er alveg draumur í dós. Við erum komnir með 2 forrit í App Store núna og vonum innilega að seinna forritið taki nú heldur betur við sér svo fyrirtækið geti borgað almennileg laun. Svo eru einnig ótrúlega mörg tækifæri tengd 305.
Afhverju heitir fyrirtækið 305 ? Jú sko, maður nokkur Steve Jobs var rekinn frá Apple, fyrirtækinu sem hann stofnaði, 1985. Hann stofnaði þá um hæl annað fyrirtæki, NeXT. Þeir framleiddu fræga tölvu sem heitir NeXT Cube, sem er kassi og hann er 305 mm á alla kanta. Þess má segja að Next tölvurnar eru foreldrar allra Apple tölva í dag ásamt iPhone símanna og iPod. og Steve Jobs er sá sem á allan heiður skilið með að koma Apple upp í það sem það er í dag. Ég sagði svo mömmu frá þessu með nafnið og hún sagði þá á móti, en þú átt afmæli 3/05, passar það ekki miklu betur ? Jú það gerði það og miklu styttri saga á bak við það. Svo fyrirtækið stendur fyrir 3 maí :)
Mikið að gerast, mikið gaman.
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 6 months
Ósk er komin með hita og sáran háls :( Hún ætlar greinilega að fá það sama og ég. Hún byrjara meira að segja einni viku á eftir næstum upp á klukkustund!?
Ósk fór til læknis á föstudaginn, var hann að athuga á henni hjartað. Hún hefur stundum kvartað undan því hann henni væri illt í hjartanu og að það væri mikil læti og hávaði í því. Mamma hunsaði þetta lengi en ákvað svo að panta tíma hjá lækni og var hún send frá heimilislækninum til barnasérfræðings sem er hennar astmalæknir. Ósk fannst svaka stuð að fara og fara í öll tækin ;) Niðurstaðan var sú að hún má ekki fá mikið af ventolin (astmameðal) yfir daginn. Þetta er víst algengur fylgikvilli. Hún hefur ekki kvartað á leikskólanum því hún fær ekki svo oft meðal þar en við ætlum að láta leikskólann vita svo þær viti hvað þetta sé ef þetta gerist þar. Hún fær þennan auka hjartslátt á kvöldin því þá er hún komin yfir sinn skamt er við gefum henni.
Ég fór til læknis á fimmtudaginn og sú sem ég fór til vill meina að ég sé með kíghósta!?!? Ég má því ekki fara í vinnuna fyrr en á miðvikudaginn því þetta smitar auðveldlega. Kíghósti er eitthvað sem er að ganga í Gjerdrum vill læknirinn meina. Ég er samt ekki alveg sátt við þetta því læknarnir vildu meina er ég var lítil að ég hefði fengið kíghósta (eitthvað sem ég vissi ekki er ég fór til læknisins) mamma vill þó meina að þetta hafi frekar verið slæmur astmi en kíghósti. Sprautan sem ég og allir hafa fengið virkar víst ekki endalaust, við fáum held ég veikari einkenni en ef við hefðum ekki fengið sprautuna. Það var tekin prufa hjá mér og fæ ég að vita niðurstöðuna á þriðjudaginn.
Íris Rós er búin að hósta nokkuð lengi og gæti verið að hún sé með þetta líka, ef hún verður ekki skárri á mánudaginn þá verður hún send í prufu ég ætla þá að byðja að Ósk fari líka.
Það verður nóg að gera hjá Trausta að hjúkra okkur öllum ;)
Við fórum að borða á Kulturhuset í Gjerdrum í gærkvöldi og hittum fullt af Íslendingum. Ég taldi mig vera það fríska að þetta væri nú ekkert mál, er nefnilega á báðum áttum hvort læknirinn hafi rétt fyrir sér ;)
Í dag er ég aumari í hálsinum og eyrunum!! Ég var greinilega ekki orðin frísk. Ég var nefnilega með samviskubit í gær yfir því að mæta ekki í vinnu því mér fannst ekkert vera að mér ;) Ég er greinilega veikari en ég hélt!?!?
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 6 months
Í gær byjaði ég að fá hita og um kvöldið var ég komin með 39!! Síðast er ég fékk svona mikinn hita var ég ca 16 ára og var alltaf að fá hálsbólgu!! þannig að núna tek ég hikalækkandi og verkjastillandi oft á dag ;) Ég vona að hitinn fari að lækka á morgun. Er ekki alveg sátti við allan þennan hita og hósta og beinverki.
Af breytingunum er allt gott að frétta. Þeir eru tilbúnir að mála eldhúsið sem verður ábyggilega gert á morgun. Rafvirkinn/píparinn kemur svo á morgun og klárar sitt held ég, allavegana vinnur eitthvað ;) Ég er ekki alveg í stuði til að taka myndir en það gæti verið að Trausti sé í stuði ;)
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 7 months
Ósk tilkynnti mömmu sinni áðan að hún ætlaði sko ekki að eiga börn er hún yrði stór, það væri sko ekkert gaman að eiga börn!! En kærasta ætlaði hún að eiga ;)
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 7 months
Á fimmtudagskvöldið var Íris Rós frekar mikið heit og grenjaði í fanginu á pabba sínum. Þetta gekk svo yfir en ég var heima á föstudaginn því Íris Rós var farin að hósta svo mikið.
Er ég var að gefa henni meðalið á föstudagsmorguninn var mér litið í eyrað á henni og sá þurran eyrnarmerg bæði inni í eyranum og á eyranum sjálfu. Ég ljóskan hringdi á læknastöðina og spurði hvort það væri möguleiki á því að vökvi rynni úr eyra á barni. Þar var mér tilkynnt að hljóðhimnan á barninu væri sprungin og hún þyrfti að mæta í skoðun eftir 8 vikur til að ath hvort hljóðhimnan gréri rétt. Svo er fólk að kvarta yfir börnunum sínum er þau fá eyrnarverki og er hljóðhimnan springur!??!?!?! Íris Rós kvartaði ekki neitt nema þessar nokkrar mínútur í fanginu á pabba sínum. Þetta er hörkukvendi sem ég á ;)
Annars eru báðar stelpurnar hóstandi, á ég von á því að það gangi yfir er við náum að þrífa húsið almennilega. Þær þurfa að þola þetta í 2-3 vikur í viðbót