Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 7 months
Það var byrjað í gær (föstudag) að setja parketið í stofuna, þeir mættu svo í morgun og héldu áfram!!!
Rafvirkinn mætti svo á fimmtudagskvöldið og tók út verkið. Hann kemur svo næstu daga og setur ljós, slökkvara og innstungur út um allt!
Þeir eru byrjaði að mála veggina í ganginum, allt er svo ljóst og flott :) :)
Ég ætla að reyna um helgina að þrífa smá, allavegana byrja í kjallaranum.
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 7 months
Á mánudaginn fór Trausti ásamt 2 öðrum í Ikea og keypti eldhúsinnréttinguna og komu þeir með hana heim. Núna er stofan full af pappakössum fyrir utan allt hitt dótið!!
Það kemur rafvirki í dag eða næstu dag. Gólfið uppi verður líka gert næstu daga. Eldhúsið verður sett upp í næstu viku!!! :) :) :)
Annaðhvort eftir vinnu á föstudaginn eða á laugardaginn förum við og kaupum eldhúsdótið. Búið er að ákveða hvað verður keypt ;)
Allt að koma. Húsið verður svo flott er við höldum uppá afmælið hennar Óskar 20 mars
Höfundur : Elsa Thora , skrifað 7 months
Þá er nýja útidyrahurðin komin á sinn stað :) Geggjað flott JAHÚ!!!
Í gærkvöldi er ég kom heim þá var smá eftir af veggnum inn í eldhúsið, restin á að fara í dag!
Fjölskyldan ætlar í Ikea eftir vinnu hjá mér og kaupa eitt stykki eldhús :) :) :) Ég er bara búin að bíða í 5 1/2 ár eftir nýju eldhúsi!!!
Ég er í fríi á þriðjudaginn, ætli það verði ekki farið í innkaupaleiðangur þá og keypt eldavél, ofn og og og og gaman gaman eða??????
Því miður þá fann ég ekki kapal til að taka myndirnar af myndavélinni í gærkvöldi þannig að það er smá bið í næstu myndir. Mér finnst ég nú hafa verið það dugleg undanfarið að þið getið nú alveg beðið í smá stund ;)
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 7 months
Kjallarinn, tröppuholið og stofan eru tilbúin. Það er verið að skifta út hurðunum í ganginum akkúrat núna og á ég því von á því að gangurinn verði tilbúinn fyrir málningu á mánudaginn. Þá er "bara" eldhúsið eftir !?!?!?!
Við Trausti erum búin að velja uppþvottavél, ofn og eldavélaplötu. Viftuna vitum við hvernig á að líta út svona ca en erum ekki búin að velja merki ;) Ísskápinn erum við ekki búin að velja, við getum alltaf notað okkar gamla áfram í einhvern tíma. Vaskinn erum við ekki búin að velja en vitum hvernig hann á að líta út. Blöndunartæki höfum við ekki rætt ennþá haha
Mér finnst þetta ganga svo hratt fyrir sig núna að ég næ ekki að fylgjast með. En það verður draumur er þetta verður búið ;)
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 7 months
Við hjónin fórum með ferjunni til Kiel á laugardagsmorgun og komum svo heim í dag mánudagsmorgun. Þetta var mikil afslöppunarhelgi. Það var matur innifalinn í verðinu báða dagana, þannig að við þurftum ekki nota veskið mikið. Við fundum verslanir um borð og gátum notað veskið þar. Trausti gat allavegana keypt sér 2 peysur ;)
Við verðum greinilega að gera þetta oftar.
Það gekk víst voða vel að passa stelpurnar, allavegana segja þau sem voru að passa það. Spurning hvað stelpurnar segja er við hittum þær í kvöld ;)
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 7 months
Íris Rós fékk gubbupest á fimmtudaginn. Það er víst einhver vírus að ganga á leikskólanum og mátti hún ekki fara á leikskólann næstu 48 tímana. Ósk var líka heima ef hún skyldi vera komin með þetta líka og væri þá ekkert að smita hina krakkana á leikskólanum.
Ósk fékk enga gubbupest en hún varð voða hás á föstudagskvöldinu og á laugardeginum líka. Á sunnudeginum hóstaði hún og hóstaði þessu ljóta þurra hósta. Þannig að í dag er hún veik heima og Íris Rós fékk að vera líka heima. Við settum Ósk á vélina og vonum því að þetta gangi fljótt yfir. Ég er heima í dag frá vinnu en á morgun á ég frí þannig að við ættum að geta náð henni niður fyrir miðvikudaginn er ég fer að vinna.
Ég nenni bara ekki að setja inn myndir, þær koma einhvern daginn, veit ekki alveg hvenær.
Við hjónin erum að fara með bátnum til Kiel á laugardaginn og komum svo til baka kl 10 á mánudagsmorgun. Marit verður með þær fyrsta sólarhringinn og Baldur og Heiðbjört næsta. Þau munu fara með þær á leikskólann á mánudeginum.
Ég og Trausti höfum gott af því að fara eitthvað við 2 og þær hafa líka mjög gott af því að vera án okkar sem ég veit að verður ekkert vandamál.
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 7 months
Smiðirnir mættu í gær (sunnudag) með fullt af gluggum. Komu svo í dag og skiptu út 4 stóru gluggunum í stofunni, gert á 5 mín! Á morgun ætla þeir svo að einangra vegginn og klára hann.
Ég er svo byrjuð að setja bækurnar okkar í bókhillurnar niðri. Sjónvarpið verður svo vonandi fært niður í kvöld eða á morgun.
Þetta kemur allt með kaldavatninu ;) en djö er ég orðin þreytt á þessu :) Það verður ÆÐI er þetta verður loksins búið!!!!
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 8 months
"Mamma ef þú þværð gleraugun þín þá sérðu miklu betur, ég tuller ikke!"
Þetta sagði sú eldri við mig er ég "sá ekki" límmiða sem hún átti í draslinu á gólfinu sem ég hafði sópað saman
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 8 months
Ósk fór til tannlæknis á mánudaginn, engin hola!! :) :) :)
Hún fékk miða rétt fyrir jól að hún ætti að mæta hjá tannlækni, hún byrjaði sama dag að telja niður ;) ekkert smá spent stúlkan. Henni fannst svaka gaman hjá tannsa og tannsi var mjög ánægð með allt. Það var reynt að taka myndir af tönnunum en Ósk tuggði á spjaldinu eða eitthvað álíka svo það tókst ekki en verður reynt aftur næst sem er eftir 18 eða 20 mánuði.
Íris Rós fékk að koma með og sjá hvað tannlæknir væri og hvað hann gerði. Íris Rós fer svo í lok sumars eða í haust til tannlæknis. Það er byrjað 3ja ára og svo á ca 2 ára fresti eftir það og allt ókeypis auðvitað ;) ;) ;)
Ósk fékk verðlaun og svo spurði hún tannlæknirinn hvort systir sín mætti ekki fá líka en þá var það útskýrt fyrir henni að systkyni fengu ekki verðlaun, bara þau sem sætu í stólnum. Var það samþykkt og Ósk var hrósað fyrir að vera svona umhyggjusöm fyrir systur sinni. Ég efast nú um að Íris Rós hefði spurt fyrir Ósk ;) hehehe
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 8 months
Eftir 2 vikur á Íslandi var nú gott að koma heim og lúlla í sínu rúmi með allt sitt dót á sínum stað ;)
Við byrjuðum á því að koma klukkutíma fyrir brottför og salurinn tómur! Við þurftum næstum því að vekja einhvern til að fá að bóka okkur (áttum flug 00:10) um leið og við vorum sest niður á kaffiteríunni þá kom klukktíma seinkunn á fluginu! Öll fjölskyldan svaf vært í flugvélinni :) Ég og Trausti komumst að því að við erum búin að búa of lengi í útlöndum því við kunnum ekki að anda í rokinu í Keflavík! Ég missti andann er við komum út!
Annars var þetta fín ferð. Áttum ánægjuleg jól, hittum fullt af fólki, bæði vini og ættingja. Við fórum meira að segja með flugvél til Egilsstaða tókum bílaleigubíl og heimsóttum langömmu og langafa á Seyðisfirði ásamt fleiri ættingum á Seyðisfirði og Egilsstöðum.
Ósk og Íris Rós fóru á skauta og fanst Ósk gaman en Íris Rós var ekki alveg að fíla þetta, hún er held ég aðeins of lítil ennþá, kannski næsta vetur.
Ósk var frekar fyndin á gamlárs. Við fórum á brennuna í Kóp og sáum flugeldasýninguna eftir sýninguna sagði Ósk: "Hvenær koma svo fleiri sprengjur?" Hún var að horfa á fleiri sprengjur en hún hefur séð öll áramót í Noregi til saman! Eftir skaupið var svo farið út að skoða flugeldana og var það svaka stuð að mati beggja en Ósk var farin inn fyrir miðnætti, var komin með nóg ;)
Sem betur fer voru Baldur og Heiðbjört búin að hita húsið smá upp áður en við komum heim, hitinn var kominn í +9 gráður er við komum heim ;) Trausti og stelpurnar voru svo heima á þriðjudaginn og hituðu húsið upp.
Ósk er að fara til tannlæknis á mánudaginn og telur hún dagana þangað til ;) Henni finnst þetta voða spennandi, hún fór síðast til tannlæknis er hún var 3ja ára. Reyndar telur hún mánuðina/dagana þangað til hún verður 5 ára. Ég held hún sé byrjuð að skipuleggja bæði veisluna og hverjum hún ætlar að bjóða!!! Hvernig verður þetta er hún verður eldri?!?!!??!