Logo

Velkomin heim til okkar



Stolt móðir

Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 9 months
Fyrir nokkrum vikum var ég spurð af deildarstjóranum á deildinni hennar Írisar Rósar hvort nota mætti mynd af Írisi Rós á forsíðu dagatals leikskólans. Ég bara jájá af hverju ekki og hugsaði svo ekki meira út í þetta. Á mánudaginn er Trausti kom að sækja stelpurnar þá var Íris Rós stolt hæna labbandi um allt með dagatalið, hún var EIN á forsíðunni!!!! :) :) Myndin af henni er helmingurinn af forsíðunni ;) restin er texti. Er þau fóru að ná í Ósk þá sýndi Íris Rós ÖLLUM sem hún hitti myndina til að kóróna þetta þá SVAF hún með dagatalið ;)
Ég hélt alltaf að það yrðu margar myndir á forsíðunni, svipað og í fyrra.

Þessi frétt er með 3 komment



Jólamatur

Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 9 months
Við hittum vinnuna hans Trausta í gær á bóndabæ ekki langt frá. Byrjað var á því að grilla pylsur á báli, farið svo á hestasleðum inn í skóg og gátum við hoggið okkar eigið jólatré og hitað sykurpúða á báli. Þar sem við ætlum ekki að vera heima hjá okkur um jóli þá vildum við ekki jólatré og grilluðum okkur því sykurpúða :) Stelpurnar voru svaka duglegar við að grilla bæði pulsur og sykurpúða, það var einsog þær hefðu gert þetta oft áður ;) Var svo hlaðborð á eftir með hinu og þessu að borða, það voru eldaðar pulsur handa krökkunum. Jólasveinninn kom keyrandi á traktor, stóð hann á skóflunni á traktornum því hreindýrin þurftu á hvíld að halda fyrir aðfangadag ;) Allir fengu pakka, krakkarnir nammipoka, starfsfólk stórann pakka og makar lítinn pakka. Þetta var í rauninni mjög gaman, óvenjulegt að hafa jólamat með mökum og hvað þá með börnin líka. Á miðvikudaginn verður svo jólaverkstæði fyrir börn starfsfólks. Það er mikið gert í því að hafa maka og börn með í þessu fyrirtæki.
Í dag er ég ekki að nenna neinu!!! Ég er búin að þvo smá þvott en meira nenni ég ekki! Mig langar bara að lúlla og lúlla. Ég var að vinna í 12 daga og síðustu 5 dagana var ég að vinna frá 05:30 - 12:30, ég er orðin alltof gömul fyrir svona ;) Ég er mikið að spá í að gefa skít í hvernig húsið lítur út og hugsa um sjálfa mig og leggja mig í smá stund :)

Þessi frétt er með 2 komment



Skórinn

Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 9 months
Ég sagði stelpunum frá jólasveininum sem kemur frá Íslandi og gefur þeim í skóinn í gærkvöldi. Ósk mundi eftir honum frá því í fyrra og tilkynnti að hann gæfi fullt af nammi ;) Er þær voru komnar inn í rúm fór Ósk fram og náði í skóinn sinn og setti hann á rúmið sitt. Í morgun er hún vaknaði tilkynnti hún mér að það væri ekkert nammi í skónum!! Ég reyndi að útskýra fyrir henni að jólasveinninn væri ekki kominn ennþá, vona að það hafi heppnast og hún bíði ekki eftir nammi á morgun líka ;)

Þessi frétt er með 6 komment



Bráðum koma jólin

Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 9 months
Við stelpurnar erum búnar að búa til smá jólaskraut. Búið að vera mjög gaman hjá okkur með lím og glimmer út um allt ;)
Við erum búin að kaupa allar jólagjafirnar handa krökkunum sem við gefum, eigum fullorðna fólkið eftir en það verður frekar auðveld gjöf í ár ;)
Smiðirnir komu í gær og fjarlægðu hurðina niður í kjallara og hurðina inn í stofu. Ég vona að þeir verði ekki eins lengi og þeir voru með kjallarann. Ég nenni ekki að hafa stofuna mína í rúst í 3 mánuði takk!

Ég var að þrífa gluggana í stofunni um helgina og notaði rúðusprey. Er Trausti kveikti á sjónvarpinu um kvöldið þá virkaði ekki magnarinn. Er hann færði til magnarann lak úr honum vökvi sem lyktaði einsog rúðuspreyið ;) Gargað var á stelpurnar og Ósk alveg: "Ég og Íris gerðum þetta ekki. Mamma var að þvo og gerði þetta!" Hún sagði þetta aftur og aftur, var mjög ákveðin. Allt í einu sagði Íris Rós: "Hendin mín gerði þetta, vonda hendi!" og sló á hendina sína ;)
Hvernig er hægt að skamma svona gullmola????

Trausti er sáttur í vinnunni, gengur bara voða vel. Fyrirtækið er með skrifstofur í nokkrum löndum og þar á meðal í Tanzaniu. Einn sem er að vinna þar er mikið í Norge og bauð öllum á skrifstofunni í Norge í brúðkaupið sitt! Þannig að okkur Trausta er boðið í brúðkap í Tanzaniu næsta sumar hehe Hann er frá Tanzaniu og hún er frá Suður Afríku.


Þessi frétt er með 1 komment



jæja

Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 10 months
Stiginn er kominn á sin stað og er alveg GEGGJAÐUR!!!! Við erum frekar mikið ánægð með stigann.
Næsta spurning er hvenær efri hæðin verður tekin í gegn. Ég vil að stigaopið verði klárað næstu vikurnar, restina má gera eftir áramót.
Sófarnir sem við keyptum koma svo í viku 50 og munum við þá sjá hvernig kjallarinn lítur út og kaupa restina af dótinu sem á að fara í kjallarann.

Það var svaka stuð að hafa Ernu og strákana í heimsókn. Stelpurnar voru í essinu sínu allan tímann! Við erum ennþá að reyna að koma þeim aftur í rútínuna!

Stelpurnar fengu svínasprautuna fyrir 2 vikum og ættu því ekki að fá svínaflensuna sem betur fer!



Þessi frétt er með 1 komment



Erna og strákarnir í heimsókn

Höfundur : Elsa Þóra, skrifað 10 months
Erna, Eggert Rafn og Jón Þór komu á föstudaginn. Búið að vera svaka gaman hjá stelpunum.
Það var frí í leikskólanum á föstudaginn þannig að Erna og strákarnir fengu þann heiður að passa stelpurnar í nokkra klukkutíma?!?!?! Er Trausti kom heim þá voru strákarnir sofandi niðri, Erna sofandi á sófanum og stelpurnar að horfa á sjónvarpið!!!! Ég hefði verið rekin á staðnum ef ég hefði gert þetta er ég var að passa fyrir Ernu á sínum tíma!!!
Jón Þór og Íris Rós stríða hvort öðru allan daginn, mjög gaman að horfa á þau ;)
Helgin er búin að vera voða róleg, reyndar fórum við Erna ásamt Heiðbjörtu og Oddbjörgu á handverkssýningu á laugardaginn. Heiðbjört og Ernu leist ekkert á er ég borgaði fyrir 5 tíma í stöðumælinn. Þær ætluðu sko ekki að vera svo lengi þarna inni, við Oddbjörg brostum bara ;) Við vorum þarna í 3 1/2 tíma!!! En þá vorum við líka orðnar frekar mikið þreyttar og svangar.
Við sjáum svo til hvað verður gert í vikunni, fer mikið eftir veðri og löngun

Þessi frétt er með 1 komment



Snjór !!!

Höfundur : Trausti Þór, skrifað 10 months
Það var allt hvítt úti í morgun af blautum slabb snjó. Ósk kom að mér og sagði, veistu hvað pabbi, það eru að koma jól.

Strigaskór eru ekki til þess fallnir að labba í slabbi, tærnar sparka vatni upp fyrir sig og maður verður blautur á ristinni.

Mig hlakkar til þegar haustið er búið. Af árstíðunum 4 þá þoli ég ekki vor og haust, því þá er blautt og kalt, það blæs meira og er napurt og miklar hita sveiflur. Ég dýrka góð sumur og vetur sem haldast. Það er meira en í lagi að það sé hellings snjór og 15-20 gráður í mínus, það er ekkert kalt, það er mun kaldara í kringum frostmark, og það kemur mikil birta af snjónum (þeir sem búa á höfuðborgar svæðinu verða bara að trúa því). En ég er þvílíkur hita kall, ég vil sumar og sól alltaf. Verst hve það er erfitt að flytja til Hawaii og að engin lönd við miðjarðar hafið hafa hátækni fyrirtæki.

Ef mér tekst að verða árangursríkur iPhone og vef forritari, þá skiptir í raun engu máli hvar maður býr. Ég gæti búið jafnt á Palermo á Ítalíu og átt hús á Seyðisfirði.

Þessi frétt er með 2 komment



BÚINN!!!!!!

Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 10 months
Fluttum dót í kjallarann í gærkvöldi!!!

Þessi frétt er með 6 komment



Mamma Mia núna!!!

Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 10 months
Íris Rós kallar/hrópar á systur sína: "Ósk mamma Mia núna!" Ósk hleypur til og syngur hehe
Ég setti geisladisk með ABBA og þá kom Íris Rós: "Mamma Mia" en þetta var ekki Mamma Mia þannig að hún fór í fýlu þangað til rétta lagið var sett á og spilað aftur og aftur og aftur!?!?!?
Ósk kann ca 2 setningar úr laginu og syngur þær aftur og aftur og aftur!!
Í kvöld var sofnaði við tóna frá ABBA

Þessi frétt er með 3 komment



Astmalæknir

Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 10 months
Fórum til astmalæknisins í morgun. Allt í góðu lagi. Síðast er við vorum hjá honum þóttist hann ekki vita hvar lungun væru og var Ósk sko alveg tilbúin til að sýna honum í dag hvar lungun voru ;) Íris Rós var alveg til í að fara til læknisins alveg þangað til við komum að dyrunum inn á stofuna, þá byrjaði hún að væla! En hann byrjaði að skoða Ósk og svo talaði hann Írisi Rós til og henni fannst voða gaman. Hún fékk að halda hlustunarpípunni að lungunum, voða fjör. Er þær voru búnar fengu þær tyggjó einsog venjulega, Ósk mundi eftir því og beið þangað til einhver var í afgreiðslunni ;)
Íris Rós á að halda áfram einsog venjulega en Ósk á að nota bara meðulin eftir þörfum einsog hún hefur gert þetta ár. Þær fá svo báðar svínasprautuna í nóv. Íris Rós er í meiri áhættuhóp en Ósk því hún tekur meðul á hverjum degi en við viljum að þær fái báðar sprautu. Það verður sprautað á hverjum þriðjudegi frá 3 nóv. Spurning hvort ég fari í röð 3 nóv eða bíði þangað til 10 nóv. Sjáum til hvað vinnan leyfi mér, efast um að það taki 5 mín að fá sprautuna, ábbygilega 4 tíma röð ;)

Þessi frétt er með 2 komment



Tenglar
Nýjar myndir
  • Img_1817_thumb
  • Img_1814_thumb
  • Img_1811_thumb
  • Img_1810_thumb
  • Img_1808_thumb
Ýmsar myndir
  • Img_0520_thumb
  • Img_9747_thumb
  • Img_1511_thumb
  • Hpim2103_thumb
  • Hpim2601_thumb
Nýjustu fréttirnar
Nýjustu kommentin
Nýjustu myndir með kommentum
Img_1806_thumb
Vala
Já, heldur að þú komist nú ekki ansi langt með þetta;) Nema það eigi að fjölga þeim mun meir í hópnum ;) hehe
Img_4093_thumb
Img_1796_thumb

Jamm!
Img_1801_thumb
Elsa Thora
Ég tek thig til fyrirmyndar Vala og geri thad næst ;)
Img_1795_thumb
Elsa Þóra
Norðmenn kalla þetta líka Moreller. Þeir vija meina að kirsuber skiptist í nokkra flokka bla bla bla
Img_1785_thumb
Elsa Þóra
Ég ætla rétt að vona að listaverkin eftir þær verði mikilsvirði ;)
Img_6367_thumb
Sigrún Ásta
Nákvæmlega, áberandi hvað Ósk er orðin stór síðan þá :)
Img_1760_thumb
Sigrún Ásta
Hún er hokin af reynslu - með fæturna í hliðunum til að hægja á sér og lengja tímann fyrir myndatökur ;)

Valid XHTML 1.1