Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 11 months
Rafvirkinn var að vinna í dag í marga klukkutíma og kláraði næstum því allan kjallarann!!! :) :) :) Það eru komin ljós í tölvuherberginu og í stofunni. Þá eiga gestaherbergið og kompann eftir að fá ljós. All flestar innstungur eru komnar, allir slökkvarar eru komnir :) Þetta er svo GAMAN!!! Rafvirkinn kemur svo eftir helgi og klára þetta vonandi. Stiginn ætti að koma í lok vikunnar en ég hef litla trú á því held að það séu nokkrar vikur í stigann.
Stelpurnar hafa báðar verið heima alla vikuna. Ég hef fengið að mæta seinna í vinnuna og Trausti komið snemma heim. Ósk er búin að vera að hósta á þriðu viku en Íris Rós byrjaði á mánudaginn með þennan þurra hósta. Ósk er orðin skárri en Íris Rós varð verri á miðvikudaginn en við náðum henni niður og er hún orðin skárri núna. Þær eiga tíma hjá astmalækninum á mánudaginn, þær fara alltaf 2svar á ári.
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 11 months
Ég er alveg viss um að Íris Rós hafi verið Ítali í fyrra lífi. Hún kyssir alltaf beint á munninn, ef kossinn er skakkur þá er kysst aftur, svo tekur hún utanum hausinn og kyssir báðar kinnarnar?!?!?!?! Mér finnst þetta vera voða Ítalíu legt hehe
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 11 months
Þessi helgi hefur liðið voða fljótt. Ég fór á fund/djamm með vinnunni á föstudaginn, mikið fjör = ókeypis á barnum ;)
Á laugardaginn pöntuðum við sófana í báðar stofurnar, fáum þá afhenta í viku 50!!!!
Á sunnudaginn fórum við í Frognerparken og hittum fullt af Íslendingum sem búa í Oslo og Akershus. Mikið gaman.
Smiðirnir alltaf að klára meira og meira. Bjartsýnin segir að þetta verði klárað fyrir lok okt?!?!?! Sjáum svo til hvað gerist. Ég veit bara eitt að ég er orðin frekar mikið mikið þreytt á öllu þessu ryki í húsinu!
Íris Rós er komin með þurran hósta og er því heima í dag. Ósk vildi líka vera heima ;) Ég fer að vinna er Trausti er búinn á fundi, ég á ekki að mæta í vinnuna fyrr en kl 14 en mun mæta milli 15 og 16. Þetta reddast allt saman
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 11 months
er í voða uppáhaldi hjá Ósk þessa dagana. Eiginlega síðan í sumar, þetta er eitthvað sem hún lærði á leikskólanum því ekki heyrir hún í Alexander Rybakk heima hjá sér. Allavegana hann var að spila í sjónvarpinu áðan og Ósk að horfa á en allt í einu stekkur hún upp og hlepyur inn í prinsessuherbergi og nær í lítið píanó!!!! Hún sest og byrjar að spila undir á meðan Alexander Rybakk spilar!! Þetta var frekar mikið fyndið ;) Tók nokkrar myndir sem verða settar inn við tækifæri um svipað leyti og myndirnar af tölvuherberginu með gólflistanum.
Ég spurði smiðinn í síðustu viku hvenær hann myndi klára og hann sagðist verða búinn eftir viku, þannig að eftir 2 vikur mum kjallarinn verða tilbúinn ;)
Höfundur : Trausti Þór, skrifað 11 months
Jæja, þá er ekki aftur snúið.
Í miðri kreppu eymdar og volæði í heiminum hef ég ákveðið að hætta í vinnunni minni og sagði upp. Ég er að fara að vinna hjá sjálfum mér við ráðgjöf, forritun og rekstur. Núna vantar mig nafn á fyrirtækið en allt annað er klappað og klárt. Er hægt að finna verri tíma til að gera svona lagað ? Ég efast um það. Er hægt að finna betri tíma til að gera þetta, ég held ekki. Þetta er langsamlegast besti tíminn til að gera þetta á versta tímapunkti. Þetta hefur blundað í mér lengi. Ég hef aldrei verið sáttur við að komið sé fram við mann eins og rollu í rétt. Setja reglur og reglugerðir um hluti sem eru sjálfsagðir. Reyna að mæla það sem ekki er hægt að mæla. Núna er bara fullt áfram og njóta ferðarinnar.
Það er svo mikið skemmtilegt að gerast í dag þar sem maður verður hreinlega að vinna sjálfur við. Ruby on Rails, iPhone forritun, vefsíðugerð, forritun. Ég er ekkert að verða yngri svo það er hreinlega núna eða aldrei
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 11 months
Haldið þið ekki að Trausti Þór hafi búið grjónagraut í kvöld!!! Grjónagrautur er einn af uppáhaldsmatnum hans Trausta og suðar hann í mér af og til til að elda grjónagraut sem ég geri. Hann hefur aldrei vilja prufa að elda sjálfur fyrr en í kvöld. Grauturinn heppnaðist það vel hjá honum að hann vill meina að mín er ekki þörf lengur?!?!?!?!
"Parketið" verðu lagt í tölvuherbergið á morgun :) :) :)
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 11 months
Við stelpurnar fórum í dag í smá labbitúr í skóginum. Þær hoppuðu í ÖLLUM pollum sem þær fundu og reyndu að festa sig í mýrinni ;) Íris Rós datt að sjálfsögðu í mýrina og varð ekkert smá drullug en voða ánægð ;)
Smiðirnir eru alltaf að nálgast endirinn merira og merira. Þetta fer allt að koma. Þeir mála örugglega tölvuherbergið næstu daga og aðra umferð yfir hina veggina. Hann vill ekki setja á gólfið fyrr en allt annað er búið. Hann vill meina að það komi alltaf ryk frá parketinu ef það er sett á áður en öll rykvinna er búin. Þeir munu klára líka stigaopið. Mig er farið að hlakka mikið til að sjá stigann, vonandi eru ekki margir mánuðir áður en hann kemur :D
Það er farið að kólna hressilega á næturnar. Ég hef ekki ennþá þurft að skafa en það kemur að því. Því miður þá getum við ekki hitað húsið með ofninum í kjallaranum fyrr en þeir eru búnir eða komnir aðeins lengra. En það verður ljúft líf ;)
Höfundur : Trausti Þór, skrifað 11 months
Ég hef lýst yfir stríði á hendur öllu einnota plasti sem er selt sem margnota. Þá er ég að tala um drasl eins og dvd myndir og cd tónlistar diskar.
Þetta rispast út í eitt bara við að spila þetta í spilara. Þó maður reyni að eiga þetta og fara varlega með þetta, þá bara skemmist þetta. Ekki bætir úr skák þegar maður er með tvær litlar stelpur sem finnst diskarnir ekkert smá flottir og skemmtilegir. Gaman að leika sér með þá og skoða myndirnar þó svo að pabbi láti heyra í sér þegar hann góma okkur eða þegar hann tekur diskana upp úr gólfinu og gengur frá.
Ég byrjaði verkið og hef nú sett inn allar kvikmyndir inn á netþjón sem ég á í kjallaranum. Þrátt fyrir góðar áætlanir þá fylltist hann frekar fljótt. Ég fór þá út og keypti fleiri harða diska, en kassinn rúmaði bara 5 diska, svo ég keypti svonefnt diska hús, sem dó, eins gott að ég var ekki byrjaður að nota það. Þá var farið út og keyptur alvöru kassi. Kassinn rúmar um 20 harða diska. Ég er núna með 9 harða diska í þessu. Í stuttu máli má áætla að hver fullur kvikmynda dvd diskur sé um 6 gígabæti, ég get sem sé geymt á diskunum eitthvað um 820 kvikmynda diska. Ekki slæmt.
Einnig hef ég keypt mér sjónvarpsseríur og sett inn, ásamt því að taka afrit af ferðavélunum og fleira og fleira.
Núna er planið að klára að setja inn friends og alla músík diska líka.
Þetta tekur allt saman svakalega mikinn tíma, en það góða með músíkina á móti kvikmyndunum er að ég get notað mun fleiri tölvur í þessa vinnu.
Svo þegar þessu er lokið, þá mun ég geta spilað allar myndirnar mínar og hlustað á tónlistina mína, allt í fullum gæðum án þess að plast draslið eyðileggist.
Afhverju að vera að henda miklum peningum og vinnuí þetta ? Jú, við hjónin eigum rétt undir 200 dvd kvikmyndir, auðveldlega 100 diskar ofan á það sem sjónvarpseríur, segjum 400 dvd diskar. Ég átti um árið eitthvað um 150 tónlista diska og Elsa Þóra eitthvað álíka, 300 þar.
Gefum okkur að hver einn og einasti diskur kosti 100 kr norskar sem er ágætis jafnaðar tala, en mig grunar að þessi upphæð sé í raun of lág. En (350 dvd diskar + 300 cd diskar ) * 100 eru 65.000 norskar krónur eða umþb 1.3 milljónir íslenskar krónur. Netþjónninn kostar bara brot af þessari upphæð. Þetta er verndun á fjárfestingu.
Þetta er bara of mikils virði að láta þetta ekki eyðileggjast. Einnig einfaldar þetta allan aðgang að öllu efninu. Auðveldara að njóta tónlistarinnar og skemmtilegra að finna myndir til að horfa á, einfaldari aðgangur og ekkert skemmist.
Allir ættu að gera svona kerfi
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 12 months
Var að bæta við nýjum myndum af kjallaranum. Allt er að gerast þarna niðri, þeir eru byrjaðir að setja rafmagnsnúrurnar og dósir :)
Myndirnar frá leikskólanum eru komnar í hús, við þurfum svo að velja hvað við viljum kaupa hehe svo auðvelt???
Við fórum á laugardaginn á fjölskyldudag á flugvellinum. Allir sem starfa á flugvellinum gátu fenið að taka 4 fjölskyldumeðlimi með sér og skoða flugvöllinn, skoða flugvélar að innan, setjast upp í slökkviliðsbílana, fá að halda á byssum hjá löggunni og margt fleira. Ég veit ekki hvor fannst skemmtilegra Trausta eða stelpunum?!?! Trausti settist í öll flugstjórasæti sem hann komst í ;) Það er takmarkað hversu margir fá miða, það var talað um hátt í 2000 manns.
Það myndir frá deginum seinna, þær myndir eru í simunum okkar Trausta. Ég fæ vonandi Trausta til að hjálpa mér að skanna inn allar myndirnar sem teknar voru á leikskólanum svo ég geti sett þær inn hérna.
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 12 months
Smiðurinn kom í gærkvöldi með plastparketið á bæði kjallarann og efrihæðina. Við ætlum að hafa eins bæði uppi og niðri. Búið er að mæla alveg fyrir stiganum þannig að hann er í vinnslu. Allt bendir til þess að kjallarinn verði búinn í byrjun okt :) :)
Við verðum svo að fara að senda bréf til sveitarfélagsins og fá samþykkt breytinguna á eldhúsglugganum. Með þessu áframhaldi þá verð ég komin með nýtt hús fyrir næsta sumar.
Kannski við ættum svo bara að breyta garðinum næsta sumar og setja svo húsið á sölu?!?!?! hehehe
Íris Rós var með hita í morgun og var því heima. Ósk vildi líka vera heima þannig að Trausti var heima með stelpurnar í dag.
Fjölskyldan fór í bíó í gær, sáum G-force. Íris Rós var kannski aðeins of ung en þær voru algjörir englar. Sátu í sætunum og heimtuðu nammi, popp og kók ;)