Höfundur : Elsa Þóra, skrifað over 6 years
Þá erum við búin að vera uppi á þaki. Djö.. er flott útsýni þaðan. Við urðum að moka snjóinn af þakinu, það á víst að hlýna og svo snjóa ennþá meira og frost líka :( Þetta var nú helv.. góð líkamshreyfing ;) Við erum núna að bíða eftir snjófræsaranum til að losna við snjóinn af
nýmokaða göngustígnum okkar :(
E.S. Þetta var ca meter af snjó
Höfundur : Trausti, skrifað over 6 years
Það er kalt hérna, svo kalt að það mælist umþb -16 allavega, kannski -20 seinna. Þetta er nú fáránlegur kuldi.
Höfundur : Elsa Þóra, skrifað over 6 years
Jæja þá erum við skötuhjú búin að búa til pönnukökur á pönnukökupönnunni sem við fengum í jólagjöf. Ekkert smá góðar pönsur, við erum mjög ánægð með okkur núna ;)
Höfundur : Elsa Þóra, skrifað over 6 years
Hvað haldiðið að hafi gerst á föstudaginn?? Við fengum miða í póstkassann þar sem stóð að við mættum drekka kaldavatnið :) Loksins, loksins ekki tekið nema 3 mánuði að fá hreint kalt vatn í hverfið!! En þeir ætla samt að halda áfram að setja klór í vatnið, allavegana í nokkra daga!? Skil ekki þessa klóráráttu.
Höfundur : Elsa Þóra, skrifað over 6 years
Það er kalt úti! :( Það er ca -11 gráður og það á víst að kólna, brrrrrrrrrrr Ég er að reyna að hita húsið upp en það gengur víst eitthvað illa, er víst enginn snilli í því að halda eldinum við í arninum en þetta kemur vonandi ef ekki þá verð ég bara að klæða mig betur ;)
Höfundur : Elsa Þóra, skrifað over 6 years
Bíllinn kom úr viðgerð í gærkvöldi :) Þetta kostaði "bara" 4.200,- norskar ;)Að sjálfsögðu fengum við setninguna: "en sko... það er víst meira að bílnum ykkar!" Þannig að það er ný viðgerð í vændum sem er áætluð að kosti 13-17.000 norskar!!! Þessi bíll verður seldur!
Höfundur : Elsa Þóra, skrifað over 6 years
Það er búið að snjóa meira eða minna síðan við komum heim, reyndar var búið að snjóa í 2 daga áður en við komum. Trausti mokaði bílinn út úr snjóskaflinum í gærkvöldi, greyið bjóst við að vera ca 1/2 tíma að þessu en þetta varð að 1 og 1/2 tíma, bíllinn var víst lærri en hann minnti ;)Við fengum snjóskóflu í jólagjöf frá Marit og fólkinu hennar, jólagjöf sem hefur komið að góðum notum undanfarið :) Póstkassinn okkar er í tætlum inni í bílskúr, það var víst sett raketta í hann á gamlárs en við fengum nýjann frá Marit og fam, eigum núna hvítann og flottann póstkassa en allir hinir eiga græna, gamla og ljóta :) Rúmið er að sjálfsögðu algjör draumur, mjög erfitt að fara á fætur á morgnana :)
Höfundur : Trausti, skrifað over 6 years
Er það rétt að segja að maður sé komin heim er maður segist vera kominn til Noregs? Því að er maður er í Noregi þá talar maður um Ísland sem heim. Þetta er frekar flókið mál að vita ekki nákvæmlega hvar maður á heima, ekki satt?
Höfundur : Trausti, skrifað over 6 years
Nóg var gert á íslandi. Fólk var heimsótt, drukkið kaffi og bjór. Ég fór í jeppa safarí með Dodda vini, á 38" trölli sem hann á. Svakalega gaman, geri þetta sko aftur. Það verða settar inn myndir af þessu seinna, um leið og ég fæ mig til í að klára endurskrifin á á myndasíðunni. Ég er að leita að góðri lausn á þessu vandamáli.
Höfundur : Trausti, skrifað over 6 years
Rúmið kom í hús þann 19 des, rétt eftir miðnætti, við náðum smá svefni áður en við fórum til íslands