Höfundur : Elsa Þóra, skrifað over 6 years
Hvað haldið þið að hafi gerst???? Sendikallarnir mættu með rúmið og er þeir ætluðu að setja það saman þá vantaði rammann!!!! :( buhuhuhu Þetta er ömurlegt. Trausti fær það verkefni á morgun að hringja og heimta rammann og afslátt líka. Við þurfum að sofa í stofunni í nótt :( reyndar einn plús hægt að sofna yfir imbanum ;)
Höfundur : Elsa Þóra, skrifað over 6 years
Við erum einsog litlir krakkar núna, rúmið er á leiðinni :) Kíkjum út um gluggan nokkrum sinnum á mínútu en ekkert gerist :( Það er einsgott að það komi næsta klukkutímann (sendikallarnir eiga að koma á milli 16 og 20 og klukkan er 19:11 núna!!) Við erum búin að taka hitt rúmið í sundur þannig að ef nýja rúmið kemur ekki í kvöld verðum við að sofa í svefnsófanum okkar.
Höfundur : Elsa Þóra, skrifað over 6 years
Trausti hefur verið í vandræðum undanfarna daga yfir því hvað hann eigi að gefa mér í jólagjöf, honum finnst hann hafa eitt nógu miklum pening í mig í desember ;) Ég leysti málið auðveldlega í gær, ég braut einn hringinn í trúlofunarhringnum :) Á ég þá ekki skilið nýjann hring með demöntum og alles í jólagjöf?????
Höfundur : Trausti, skrifað over 6 years
Hvað er hægt að bæta við þessa heimasíðu til að gera hana ennþá betri ? Hvað viljiði fá ?
Vinsamlegast sendið inn hugmyndir á viskubókina
Höfundur : Trausti, skrifað over 6 years
Grátur og gnístan tanna kemur frá Noregi þessa stundina, bíllinn okkar er bilaður :'( En ekkert alvarlegt, verður gert við hann örugglega á meðan við erum á klakanum (skerinu).
Það fór ykkur svona að segja að ýskra ískyggilega mikið og við fórum með hann til snillings, og hann sagi okkur að stýristöngin (held ég að þetta heiti á elskulegu móðurmáli) sé svo slitin að við ættum ekki að keyra bílinn meira fyrr en þetta er lagað. Svo núna er Elsa Þóra lengur en 1 klst að komast í vinnuna, sem er svipað og ég er
Höfundur : Elsa Þóra, skrifað over 6 years
Jæja það fer að styttist í heimkomuna :) Ég er búin að pakka öllu í huganum verð að halda í mig svo ég byrji ekki að pakka í dag. En það er eitt sem ég hef saknað mjög mikið síðastliðnar 8 vikur og það er íslenska vatnið. Við höfum þurft að sjóða neysluvatnið síðan 18 október!!! Til að drepa bakteríurnar þá hafa norðmenn frábæra lausn en hún er að setja klór í vatnið :( Þannig að í hvert skipti sem ég vaska upp eða bursta tennurnar þá fer mig að langa í sund ;)
Stóri dagurinn var víst í gær :( Það kom fullt af fólki og ég fékk fullt af pökkum :) Myndir verða settar á síðuna fljótlega
Höfundur : Trausti, skrifað over 6 years
Fyrir þá sem ekki vissu, en þá gerist tvennt þann 10 des. Friðarverðlaun Nóbels verða afhent og Elsa Þóra Eggertsdóttir á afmæli, og ekkert smá afmæli.
Hún verður 30 ára gömul (fyrirgefiði UNG). Öllum er boðið í kaffi og kökur eftir kl 6 á miðvikudaginn.
Hún á afmæli þann 10unda, húna á afmæli .......
Höfundur : Elsa Þóra, skrifað over 6 years
Jæja þá erum við búin að kaupa allar jólagjafirnar, ekkert stress á flugvellinum né á Þorláksmessu :) Þetta er yndislegt líf, reyndar er Trausti eitthvað ad kvarta yfir því að hann muni ekki hafa neitt að gera á flugvellinum né á Þorláksmessu hehehehehehe
Ég fékk eldavélina lánaða í dag, ekkert smá heppin. Reyndar þurfti ég bara bakarofninn, eigandinn var eitthvað að vonast til að fá það sem eyðilagðist en því miður þá eyðilagðist ekki svo mikið. Það sem eyðilagðist var ekki mér að kenna heldur þeim sem sendi mér uppskriftina!!! Þannig að Trausti situr núna fyrir framan imbann og borðar mjög sæta svampbotna ;)
Höfundur : Trausti, skrifað over 6 years
Eftir smá vöku (klukkan er 2:35) þá er ég kominn með flokkun á myndirnar, bara til að fatta það að það þarf fleiri flokka. En aðallega vantar inn fleiri myndir. Ég verð að kenna Elsu að setja inn efni á síðuna.
Höfundur : Trausti, skrifað almost 7 years
Ég er núna búinn með bók 4 af Harry Potter