Höfundur : Trausti Þór, skrifað 12 months
Síðustu daga hefur verið draugur í húsinu. Allskonar hljóð og vitleysa, ljós að dimmast og birtast, heimasíminn verið að pípa og klukkan á eldavélinni verið að senda það sem virðist vera morse kóði, tikk tikk dash tikk tikk....
En eins og alltaf þá reyndist þetta ekki vera draugagangur heldur að það var eitthvað að rafmagninu í húsinu. Ingi var vakinn upp rétt fyrir klukkan 1 eftir miðnætti og spurður út í þetta. Daginn eftir hringdi ég í Hafslund (Rarik?) og þeir mættu á staðinn og fundu út að þetta hlyti að vera vesen innan í húsinu. Ingi fór yfir alla töfluna heima og fann ekkert að.
Eftir mikla leit þá var allt í einu munað eftir rafmagnstöflu uppi á háalofti. Inga leyst ekki á blikuna því að eitt tengið var að brenna upp og vír að bráðna. Ef ekkert hefði verið gert og við hringt í prest frekar en Inga, þá hefði kofinn fuðrað upp að öllum líkindum.
Einn nágranninn á son sem er rafvirki og mætti hann ásamt hafslund í morgun, tóku rafmagnið af húsinu og settu alvöru rafmagnstöflu á háaloftið og fjarlægðu alveg keramík öryggin sem voru sett inn þarna fyrir 30 árum síðan.
Allt bendir til að elding hafi slegið niður í húsið eða nálægt því (ekki óalgengt), og við hringdum þá í tryggingafélagið. Eins og alltaf þegar eitthvað tjón kemur upp hjá okkur, þá er sjálfsábyrgðin sú sama og tjónið er. Þannig að miðað við síðasta pistil, þá á maður bara að selja kofann, segja upp trygginginunum og fara til Breta lands.
Höfundur : Trausti Þór, skrifað 12 months
Yfirvaldið hefur sagt að við séum að flytja til Englands, í húsið við hliðina á Sollu frænku.
Hún Ósk er mjög ósátt með að Solla sem er jú jafngömul sé byrjuð í alvöru skóla á meðan hún er látin hanga í bara leikskóla. Svo hún vill að allir flytji til Englands, og það strax (pabbinn er ekkert svaka mikið á móti þessari hugmynd).
Að vera með minna en 2 daga á ári með mínus gráður er bara hið besta mál.
Ósk tekur þetta skólamál ekkert með léttu hugarfari, hún er farin að læra heima líka. Tók upp litabækur og svoleiðis og tilkynnti það að hún væri að læra heima.
Þá er það bara spurning hvenær við byrjum að pakka ?
Höfundur : DE, skrifað 12 months
Allt er einsog það á að vera hérna í sveitinni. Beljurnar komu í heimsókn í garðinn í gærmorgun. Þannig að núna eru rollurnar og beljurnar búnar að koma. Spurning hvort að elgurinn láti sjá sig í haust hehe
Við fórum öll fjölskyldan í myndatöku í ágúst. Niðurstöðurnar eru komnar og voru myndirnar af stelpunum MJÖG flottar. Við keyptum eina stóra mynd á striga og svo nokkrar minni í ramma. Við munum skanna inn myndirnar og setja þær vonandi á síðuna fljótlega.
Íris Rós er alveg hætt með bleyju og duddu. Þannig að núna á ég 2 stórar stelpur ;) Það er svo mikill munur að vera ekki með bleyjubarn, það er draumur í dós.
Íris Rós er farin að tala og tala og tala og ekki talar Ósk minni þannig að stundum langar foreldrunum að loka sig af og njóta þagnarinnar í nokkrar mínútur.
Þær geta rifist og potað í hvor aðra eina mínútuna en næstu eru þær kjassandi hvor aðra.
Ég býð eftir því að Íris Rós og Mari í næsta húsi geti farið að leika sér meira saman. Mari er systir Trym og er jafngömul og Íris Rós, hún verður 2ja ára í nóv.
Mina Helene vinkona Óskar finnst Íris Rós of lítil og vill því ekki leyfa henni að vera með. Ég vil ekki heldur að Ósk finnist hún þurfa að druslast með systur sína út um allt. Ég vil að þær eigi sína vini í friði.
Þannig að Íris Rós er voða mikið ein úti í garði eða með foreldrum sínum.
Höfundur : Trausti Þór, skrifað about 1 year
Jæja, þá eru liðnir rúmlega 3-4 dagar sem Íris Rós hefur ekkert fengið duddu og hún virðist ekki sakna hennar. Spurði aðeins um hana síðustu helgi, en svo ekkert. Svakalega dugleg að segja til en heimtar að gera allt sitt í koppinn, klósettið sem var það vinsælasta er það alls ekki lengur.
Kjallarinn gengur prýðilega vel hjá smiðunum. Búið er að setja plötur, einangrun, extra einangrun og auka bita í loftið. Þeir eru búnir að skera niður alla bitana sem eiga að fara á veggina, svo núna í dag munu þeir setja einangrun og gips plötur á veggina. Þá fyrst fer að koma mynd af þessu.
Við ákváðum að hafa eins parket á stofunni og ganginum uppi og á öllum kjallaranum.
Ég er ekkert orðinn smá spenntur fyrir þessu. Smiðirnir taka sér smá pásu í lok vikunnar og verða frá í allavega viku. Það verður erfitt, en kannski maður þrífi á meðan ?
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað about 1 year
Það er fótbolti í sjónvarpinu.
Mamman: "þetta er fótbolti"
Ósk: "mamma mannstu er við vorum þarna? Þá var Eggert Rafn þar. Hann var voða fljótur og duglegur" :)
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað about 1 year
Það hefur ekki komið eitt slys hjá Írisi Rós í 2 vikur núna :) :)
Þannig að núna er hún bara með bleyju á næturnar, við tökum á því fljótlega. Hún er loksins farin að finna hvenær hún þarf að pissa og getur beðið í 2 mín áður en pissið kemur. Held hún sé betur undirbúin til að hætta með næturbleyjuna núna en hún var fyrr í sumar.
Skiptiborðið er allavegana farið út úr baðherberginu!! :)
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað about 1 year
Ég er búin að vera að setja inn FULLT af myndum undanfarið en það virðist sem enginn skoði þessar blessuðu myndir?!?!?! Allavegana tjáir sig enginn um myndirnar og mjög fáir tjá sig um það sem við skrifum.
Nenni þessu ekki lengur. Ég á eftir að setja frekar margar myndir inn frá sumrinu sem koma þá ekki inn. Reyndar gæti farið að við læsum síðunni og notum hana bara fyrir okkur heimilisfólkið.
Höfundur : Trausti Þór, skrifað about 1 year
Það vaxa villi jarðaber og kirsuber í garðinu hjá okkur. Elsa Þóra týndi heilan helling af kirsuberjum og bjó til kirskuberja böku handa húsbóndanum. Húsbóndinn er ennþá með bros allan hringinn.
Baldur og Heiðbjört kiktu í heimsókn í dag, virðast hafa fundið lyktina og þeim líkaði bakan mjög vel einnig.
Höfundur : Trausti Þór, skrifað about 1 year
Um daginn fékk ég í hausinn að svínarif gætu verið góður matur, minnir mig að ég hafi verið að horfa á sjónvarpið og einhver að éta svoleiðis. Vandamálið er að ég hef reynt að éta rif áður. Fór t.d. á Ruby Tuesday með Dodda eitt sinn, og fékk rif, Doddi fékk sér líka og hann var alveg glaður með sitt, en mér fannst rifin alveg hræðileg. Það leyndi sér ekki að rifin voru soðin áður en þau voru sett í ofn. Svo sá ég á BBC Food mann gera rif og hann einmitt sauð rifin fyrst. Þar með afskrifaði ég rif með öllu.
En um daginn þá hugsaði ég með mér að ef ég grillaði þetta frá grunni, á lágum hita í langan tíma, það myndi skila sér. Ég hringdi í Halldór og spurði hvort hann væri ekki til í að prufa svona. Hann sagði bara "Þú hafðir mig á Halló".
Ég skaust til Svíþjóðar, tók Baldur með og stelpurnar. Eftir miklar umræður við slátrarana/kjót mennina, þá valdi ég svínarifin, fengum okkur að éta og svo var farið heim með yfir 10 KG af kjöti.
Svo fór ég að hugsa, hversu lengi er nógu lengi ? Þegar maður eldar svínakjöt þá vill maður að beinin séu gegnum steikt líka og að kjötið sé well done. En svína kjöt er mjög magurt kjöt, það er engin fita inn í kjötinu, svo það er minnsta málið að gera mjög þurrt kjöt, það vill enginn.
Þá koma BBQ Pit Boys til hjálpar. Vefsíðan þeirra er hrein snilld, með miklu meira en 100 youtube video skrám, endalaus fróðleikur um grill. Þeir að vísu grilla allt saman á kolagrilli og fá mann til að langa í svoleiðis. En galdurinn er að grillið skal vera lokað og hitinn skal vera í kringum 130 gráður á Celsius, svo snýr maður kjötinu á um klukkutíma fresti eða þegar maður klárar einn bjór. Hafa BBQ soð til að drippa á steikina allan tímann og svo góðar BBQ sósur og ferskann maís, beint af túninu.
Þtta var þvílíkt frábær matur og vel þess virði að hafa staðið við grillið (eða ekki) í 4 tíma, slökkva elda og ýmislegt annað. Alveg geggjað.
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað about 1 year
Mamma mín átti afmæli í gær og vildi Ósk endilega óska ömmu sinni til hamingju með afmælið. Hringt var til Íslands og amma beðin um að koma á skype. Amma mætti á svæðið og Ósk byrjaði að syngja: "Happy bursdag to youl, happy bursdag to youl" Það var bara þessi eina setning aftur og aftur og aftur. Þetta var alveg ótrúlega sætt og brostu allir hringinn sem heyrði í henni ;)