Logo

Velkomin heim til okkar



Happy bursdag to youl

Höfundur : Elsa Þóra , skrifað about 1 year
Mamma mín átti afmæli í gær og vildi Ósk endilega óska ömmu sinni til hamingju með afmælið. Hringt var til Íslands og amma beðin um að koma á skype. Amma mætti á svæðið og Ósk byrjaði að syngja: "Happy bursdag to youl, happy bursdag to youl" Það var bara þessi eina setning aftur og aftur og aftur. Þetta var alveg ótrúlega sætt og brostu allir hringinn sem heyrði í henni ;)

Þessi frétt er með 1 komment



Göt i eyrun???

Höfundur : Elsa Þóra , skrifað about 1 year
Á ég að leyfa Ósk að fá göt í eyrun??? 2 af hennar aðal vinkonum á leikskólanum eru komnar með göt, þær Tea og Aurora. Þær hafa ekki lent í neinum vandræðum á leikskólanum, þannig að það virðist vera óhætt. Ég hef mestar áhyggjur af því að einhver tosi í eyrnarlokkana.
Ég fékk göt rétt rúmlega 4 ára og lenti ekki í neinu veseni á leikskólanm en man eftir einni stelpu sem blæddi úr eyranu hennar því einhver hafði togað í eyrnarlokkinn. Það situr svolítið fast í mér, er því voða efins ;)

Þessi frétt er með 7 komment



Gat á hausinn!!

Höfundur : Elsa Þóra , skrifað about 1 year
Íris Rós fór á læknavaktina í dag. Hún var niðri að leika er hún datt fram fyrir sig og datt beint á neðstu tröppuna. Hún fékk gat á ennið og það þurfti að sauma 2 spor. Hún var rosa dugleg hjá lækninum, var á fullu að leika sér á meðan við vorum að bíða eftir að komast að. Íris Rós grenjaði smá er hún fékk deyfisprautuna en annars var hún algjör hetja!

Er ég kom upp með Írisi Rós þá kom Ósk hlaupandi með plástur handa litlu systur, ég sagði henni að Íris Rós þyrfti að fá stærri plástur og fara til læknisins og láta sauma sárið alveg einsog var gert hjá henni á hökunni. Ósk horfði á mig í nokkrar sekúndur hljóp inná bað og kom til baka með stærri plástur!!! hehe

Við erum á fullu að tæma kjallarann þessa helgi. Baldur og Heiðbjört komu í dag og hjálpuðu til,. Þau verða reyndar að koma aftur á morgun því Íris Rós tafði okkur svo.

Myndir verða settar inn eftir helgi, er á kvöldvakt næstu viku

Þessi frétt er með 1 komment



mikið að gerast á stóru heimili

Höfundur : Elsa Þóra , skrifað about 1 year
Ég er búin að setja inn fullt fullt af myndum bæði í júní og júlí albúmin. Fleiri myndir koma næstu daga. Flestar myndirnar frá júní eru í tölvunni hans TJ og er hún upptekin 24/7 í 365 daga ;) en þetta fer allt að koma í rólegheitunum, mér finnst fólk ekki nógu duglegt að kommenta á myndirnar þannig að ég er ekkert að flýta mér hehe

Við keyptum nýtt rúm handa Írisi Rós um daginn. Er við vorum að setja það saman labbaði hún á milli okkar og knúsaði og þakkaði fyrir sig. Ósk var nú ekkert voða hrifin af því að systir sín fengi nýtt rúm sem væri miklu stærra en hennar. Rúmið hennar Óskar er 70X180 en Írisar Rósar er 90X200, það er smá munur á rúmunum!?!?! Þær rökræða á kvöldin hvor eigi að sofa hvar. Er þær sofa báðar í nýja rúminu þá vera þær ekki varar hvor við aðra, sofa í sitthvorum endanum hehe.

Við ætlum að fara að klára kjallarann fyrir veturinn. Við settum auglysingu á netið í síðustu viku og nú þegar eru 3 smiðir búnir að koma í heimsókn og fleiri koma í næstu viku! Við bíðum spennt eftir að fá tilboðin frá þeim, vita hvað þetta mun kosta okkur mikla peninga :( En það verður frábært er þetta verður búið, þeir áætla allir að þetta muni taka ca 3 vikur!!

Ósk byrjaði að tala um Alexander Rybak um daginn, það tók móðurina nokkrar sekúndur að fatta að þetta var ekki strákur í leikskólanum!!! "Alexander er glad i jenter" " han spiller på sånn ..." þá þóttist hún spila á fiðlu!!! Þetta er greinilega eitthvað sem hún heyrir á leikskólanum því ekki heyrir hún neitt svona heima hjá sér!!

Baldur og Heiðbjört pössuðu fyrir okkur í gærkvöldi er ég og Trausti fórum út að borða og í bíó. Það var voða næs að komast aðeins út við 2 :) Við sáum Harry Potter, mér fannst myndin góð en ég er heldur ekki búin að lesa síðustu bækurnar.




Þessi frétt er með 0 komment



Bleyjulaus!!

Höfundur : Elsa Þóra , skrifað about 1 year
Íris Rós var farin að pissa í klósettið er við vorum á Íslandi en hún var alltaf með bleyjuna. Er hún byrjaði svo á leikskólanum í síðustu viku þá var ákveðið að hún yrði ekki með bleyju. Fyrsta vikan var ekkert mál en........ hún var svaka löt um helgina og pissaði í raun eingöngu á gólfið!!! Á mánudaginn pissaði hún það mikið á sig að þær settu á hana bleyju en í gær var bara eitt óhapp :) Við skulum vona að þetta hafi bara verið tímabundið :) :)

Íris Rós er öll útí útbrotum í andlitinu en enginn læknir vill hitta hana. Ósk fékk nokkur útbrot sem virðast vera að hverfa. Við skulum vona að þetta hverfi hjá þeim báðum á næstu dögum.

Annars er bara allt gott að frétta, ég set inn myndir af og til. Þetta eru svo rosalega margar myndir að þetta mun taka mig allt sumarið ;)

Þessi frétt er með 2 komment



Geggjað veður

Höfundur : Trausti Þór, skrifað about 1 year
Alla síðustu viku og þessa viku hefur verið rétt undir 30 stiga hiti, það hreyfir ekki vind. Þetta er alveg eins og að vera á Portúgal eða Ítalíu. Mér líkar þetta svakalega vel ásamt Ósk og Írisi sem bara fíla það í botn að vera á stuttbuxum allan daginn. Eini gallinn við þetta er að það er rúmlega 20 stiga hiti um miðnætti, sem er í heitara lagi er maður reynir að sofna, en einhvern veginn tekst þetta hjá manni og ég hef náð að senda stelpurnar í leikskólann og mæta fyrir klukkan 9 í vinnuna, eins og á að gera.

Ég var heima með stelpurnar alla síðustu viku. Svaka gaman hjá okkur. Við fórum til Halldórs og Heiðdísar og lékum okkur við börnin þeirra og þau eru með stóra uppblásna sundlaug sem var algjört æði fyrir stelpurnar (ég og Halldór vorum að ræða og skoða ágæti blue ray hágæða dvd mynda og playstation 3).

Stelpurnar eru alveg að blómstra núna, þær eru svakalega góðar vinkonur þó að önnur segi frekar oft "Ósk var slemm" sem þýðir að Ósk vildi ekki gera eitthvað og ef eitthvað er verið að prakkarast þá segir hin "já en Íris vildi / gerði þetta". Maður fær oft það á tilfinninguna að Íris ráði doldið þegar kemur að prakkara strikum og óhlýðni, annars ræður sú eldri.

Talandi um óhlýðni. Eiginlega sama hvað maður segir við Írisi þá horfir hún á mann með bros út í annað, hnykktar brýrnar og segir NEI pabba, NEI og gerir svo það sem hún vill. Maður segir að það sé ekki leyfilegt að fara út, augnabliki seinna er maður að ná í þær út á verönd. Íris er miklu verri í þessari óhlýðni en Ósk, en á móti kemur að Ósk getur opnað hurðarnar og stungið af. Einn morguninn voru þær komnar út í garð hjá nágranna okkar á trampólínið hjá honum. Ég hefði getað náð þeim en ákvað að klæða mig áður en ég hlypi út á brókinni.

Það er lítið sem þeim systrum dettur ekki í hug að gera, en eitt eru þær sammála um, foreldrarnir eru bara fyrir manni og skemmileggja allt sem er gaman. Ég hlakka ekkert smá til þegar þær eru eldri (hæðni)

Þessi frétt er með 0 komment



Komin til Íslands

Höfundur : Elsa Þóra , skrifað about 1 year
Eftir mikið stress við tiltekt og pökkun á föstudag og laugardag þá var loksins komið til Íslands.
Það er búið að vera svaka fjör hjá stelpunum, þær fá svo mikla athygli að þær eru 3 tíma að róa sig niður í svefn!!!
Vonandi verður þetta betra eftir nokkra daga ;)

Ég er með íslenska númerið mitt og einnig það norska ef svo ólíklega vildi til að einhver vildi vera í sambandi ;)

Þessi frétt er með 2 komment



Breytingar ennþá aftur

Höfundur : Trausti Þór, skrifað over 1 year
Jæja. Smá fikt. var orðinn frekar mikið þreyttur á gamla gráa bakgrunninum og ákvað að breyta útlitinu smá.

Nýjar stafagerðir og nýjir litir. Það eru einhverjir íhaldsömustu notendur á veraldar vefnum sem lesa þessa síðu svo ég geri ekki allt í einu.

Eitt sem skal breytast, og það fljótlega er að það mun verða mun einfaldara að kommenta.

Eitthvað annað sem vantar ?

Þessi frétt er með 7 komment



Skógarferð og grill

Höfundur : Trausti Þór, skrifað over 1 year
Ég tók stelpurnar í skógarferð í gær. Það var labbað í gegnum skóginn og niður að vatni, og þar var stelpunun leyft að busla og vaða í vatninu á meðan pabbinn sólaði sig.

Pabbinn slapp ekki og þurfti að vaða út í vatnið til að sækja stóru skvísuna. Íris Rós slapp ekki alveg heldur, fór eitthvað að eltast við spýtukubb sem endaði með því að hausinn stakkst á kaf (bara andlitið). Það var svo gaman að hún gerði það aftur.

Svo var labbað heim. Báðar urðu svo þreyttar eftir þetta að það var sofnað við matar borðið. Fengu þær að að sofa aðeins áður er grillveislan byrjaði.

Vala og Raymond, Oddbjörg og Ragna Dögg ásamt Óskari frænda mættu á staðinn og þar var étið mikið af Flintstone steikum, bökuðum kartöflum sem litu út fyrir að vera handboltar.

Góður félagsskapur og geggjaður matur.

Loka niðurstaða kvöldsins er sú að pabbinn er í veikindafríi í nokkra vegna þess að einhver flugu skratti beit hann. Hendin er svo bólgin að það gengur ílla að nota tölvur. Urrgh. Myndir af öllu saman nema grillveislunni eru í Maí albúminu

Þessi frétt er með 1 komment



Dóttir síns föðurs!?!?!?

Höfundur : Elsa Þóra , skrifað over 1 year
Í gærmorgun fengu stelpurnar coco puffs og cherioos því ekkert jógúrt var til á heimilinu. Er ég var að ná í föt á þær með aðstoð Óskar var Íris Rós skilin ein eftir við matarborðið því hún var ekki búin að klára matinn. Það var hættulega mikil þögn við matarborðið sem hafði sínar ástæður er ég mætti á svæðið. Íris Rós sat/stóð á matarborðinu og var að setja Chrioos ofaní mjólkurfernuna!!!
Þannig að núna er ég með sér mjólkurfernu fyrir Cherioosið ;)
Reyndar fann ég 2 skeiðar í fernunni í morgun !?!?!? ;) hehehe

Þessi frétt er með 3 komment



Tenglar
Nýjar myndir
  • Img_1817_thumb
  • Img_1814_thumb
  • Img_1811_thumb
  • Img_1810_thumb
  • Img_1808_thumb
Ýmsar myndir
  • Img_6659_thumb
  • Img_0772_thumb
  • Img_0320_thumb
  • Img_1580_thumb
  • Img_1198_thumb
Nýjustu fréttirnar
Nýjustu kommentin
Nýjustu myndir með kommentum
Img_1806_thumb
Vala
Já, heldur að þú komist nú ekki ansi langt með þetta;) Nema það eigi að fjölga þeim mun meir í hópnum ;) hehe
Img_4093_thumb
Img_1796_thumb

Jamm!
Img_1801_thumb
Elsa Thora
Ég tek thig til fyrirmyndar Vala og geri thad næst ;)
Img_1795_thumb
Elsa Þóra
Norðmenn kalla þetta líka Moreller. Þeir vija meina að kirsuber skiptist í nokkra flokka bla bla bla
Img_1785_thumb
Elsa Þóra
Ég ætla rétt að vona að listaverkin eftir þær verði mikilsvirði ;)
Img_6367_thumb
Sigrún Ásta
Nákvæmlega, áberandi hvað Ósk er orðin stór síðan þá :)
Img_1760_thumb
Sigrún Ásta
Hún er hokin af reynslu - með fæturna í hliðunum til að hægja á sér og lengja tímann fyrir myndatökur ;)

Valid XHTML 1.1