Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 2 days
Ósk er byrjuð í "skólanum" í leikskólanum. Henni finnst ekkert smá gaman og hlakkar mikið til að byrja í alvöru skóla og fá heimaverkefni á HVERJUM degi!! Hún er að læra tölustafina núna, þau byrja á því og svo held ég að hún læri bókstafina.
Hún teiknar bylgjur er hún er að telja niður dagana, svo er sett x yfir eina bylgju fyrir hvern dag sem er búinn. Ég hef verið að reyna að komast að því hvað hún sé að reyna að tjá. Af hverju hún sé að teikna bylgjur en ekki strik t.d. En þetta eru fjöll sem hún teiknar ;)
Ósk byrar svo á dansnámskeiði á þriðjudaginn. Svaka spenna í gangi ;)
Íris Rós er bara ekkert að sýna dansi neinn áhuga. Hún dansar með en er ekkert að dansa sjálfstætt eða byrjar ein að dansa. Því fer hún ekki í dans þetta árið. Hún fær að gera eitthvað annað seinna er hún finnur sig í einhverju.
Við höfum bara ekkert tekið myndir lengi og því eru engar nýjar myndir komnar inn. Fataskápurinn er að verða tilbúinn og mun ég þá taka myndir handa ykkur. Hurðarnar eru komnar :) :) en bíða úti í bílskúr ;)
Ég er í fríi á morgun og ætla í Ikea að versla og kaupa föt á Ósk en hún á engar peysur lengur. Sá það í morgun að sumar sokkabuxurnar eru orðnar ands þunnar á tánum ;) Stelpurnar hafa fengið að fara í pilsi og sokkabuxum á leikskólann þessa viku.
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 7 days
Ég bauð Trausta á tónleika með Jean Michel Jarre. Þetta er ekki tónlist sem mér finnst skemmtileg en ég vildi nú vera góð við kallinn svona einu sinni ;) Það er búið að rigna meir eða minna í nokkra daga og var útlitið ekki jákvætt fyrir tónleikana. En á tónleikana skyldi Trausti fara! Hrönn og Garðar voru svo æðisleg að þau leyfðu stelpunum að vera hjá sér. Við Trausti fórum út að borða og er við vorum að labba á tónleikana þá rigndi ekki mikið en samt. Við keyptum okkur plastpoka til hafa yfir okkur og sáum við ekki eftir þeim pening því vá hvað það rigndi mikið!! En um leið og kallinn mætti á sviðið þá hætti að rigna!??!?! Þetta voru ágætir tónleikar fyrir utan tónlistina hehe. Það var rosa flott að sjá leysigeislana í loftinu og í trjánum. Við sum lögin voru líka flugeldar, kom hrikalega vel út. En núna er ég búin að fara á tónleika með Jean Michel Jarre og þarf aldrei að gera það aftur!
Stelpunum fanst æði að fara í pössun. Ósk vildi alveg vera lengur en Íris Rós var alveg tilbúin til að koma heim. Fljótlega eftir að við komum heim þá sofnaði Íris Rós í sófanum, var greinilega alveg búin á því ;)
Ef ég tel rétt þá var þetta í 6 skipti sem Ósk gistir hjá öðrum.
Sandra og Gulli 2 svar
Vala og Raymond 1
Marit 2 svar
Baldur og Heiðbjört 1 (reyndar sváfu þær heima hjá sér)
Endilega leiðrétta mig ef ég man vitlaust
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 12 days
Ósk fer einu sinni í viku í skólahóp á leikskólanum. Eiga þau að læra einhverja stafi og tölustafi. Svo er verið að undirbúa þau undir skólann og reglurnar sem eru þar.
Þau hittust í síðustu viku, bara svona til að kynna þeim hvað ætti að gerast og hvar þau ættu að vera. Ósk var mjög svekt er ég spurði hana hvernig hefði verið því hún fékk engann heimalærdóm!!!
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 14 days
Ég var ad skrifa í tölvunni og kemur Ósk tik mín og spyr mig af hverju ég yti ekki á thennan takka thví thá verdi ég rík!? Bendir hún á takkann med tölustafinum 4 en á theim takka er $. Hún var svo einlæg er hún spurdi mig, fannst alveg sjálfsagt ad verda rík med thví ad yta á thennann takka ;)
Höfundur : Trausti Þór Jóhannsson, skrifað 17 days
Þegar ég var rétt norðan megin við 30 árin, tók ég eins og margir upp á því að fara að lifa hollara lífi. Minnka óhollustuna, éta múslí og mjólk í morgunmat, hafragraut og brauð með osti.
En heilsan versnaði. Vanlíðan og veikindi skók mann. En mótbárur eru bara til að yfirvinnast, ekki satt ? Þetta bara herti mann upp. Bara meiri hollusta, og ekki bara í morgunmat og hádeigismat. Meiri hollusta. Brátt fór maður að hlaupa í skóginum sem Tarzan væri. Hvert brautametið slegið, en heilsan versnaði og versnaði og hreint út sagt, kvillarnir urðu alvarlegri. Þetta er bara lífið eftir þrítugt hugsaði maður.
Bara meiri hollusta. Verri varð heilsan.
Ég fattaði svo fyrir um viku að heilsan eftir 30 væri bara frábær ef maður tapaði ekki vitinu og að fatta hluti. Fyrir slysni fékk ég mér ekki morgunmat í nokkra daga. Skyndibitamat svo í hádeiginu en ekki hollustu vörur.
Fékk mér svo hollan morgunmat og þá rann upp fyrir mér skyndilega á harðahlaupum á ákveðinn stað. Öll þessi hollusta var að kála mér.
Ég þoli ekki mjólk og mjólkur vörur. Ég er núna að fatta að alveg ótrúlega mikið af því sem ég kunni best að meta, hrísgrjónagrautur sem er alveg í uppáhaldi, pönnukökur, vöfflur og vanillubúðingur er alveg stórhættulegt.
Það er ekki heilsan sem fer um þrítugt, það er "fattið" sem hverfur :)
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 23 days
Ég kvefaðist á þriðjudaginn og er búin að vera kvefuð núna í 3 daga. Ætlunin er að fara til Söndru og Gulla um helgina, fyrsta ferðalag fjölskyldunnar saman þetta árið. Trausti er búin að vera að vinna það mikið að hann hefur bara getað tekið í mesta lagi einn dag frí í einu. En núna var hann búinn að fá nóg og vildi komast í frí!
Af því að ég er svona kvefuð. Illt í eyrum, stífluð í nefi, aum í hálsi, fæ grænt þykkt slím upp er ég hósta þá hringdi ég til að panta tíma hjá lækni. Get hringt um morgun og fengið akút tíma. Konan í símanum spyr mig aftur og aftur hvort ég virkilega þurfi að koma til læknis???? Af hverju var ég að hringa? Hún sagði að eyrnarbólga gengi yfir, mig langaði mikið til að spyrja hana hvort hún hefði fengið eyrnarbólgu?! Hún vildi vita hvort ég væri komin með lungnabólgu, hvernig í #$%$#$ ætti ég að vita það? Eftir nokkur hóstaköst og hún búin að segja ha nokkrum sinnum því ég er ekki með mikla rödd þá ákvað hún að gefa mér tíma! Vá hvað hún var góð?!?!?
Vonandi fæ ég eitthvað hjá lækninum til að losa mig við allt þetta slím og get svo farið til Söndru og Gulla á eftir :) :)
Íris Rós hóstar ennþá en það er allt farið að minnka.
Þær blómstra á leikskólanum báðar tvær. Allt virðist ganga vel. Þær eru ekkert mikið að slást ;)
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 28 days
Þá er Íris Rós búin að vera eina viku á Grevlingbo (stóru barna deildin). Það er búið að vera svoooooo gaman að það er einsog hún hafi alltaf verið þarna ;) Ég sótti hana 4 sinnum þessa vikuna og í hvert skipti þá fékk ég skilaboð um að Íris Rós hefiði dottið!?!?! Ég held hún hafi verið svo áköf að hún gleymdi sér smá er hún var að leika ;)
Þeim systrum semur ennþá vel!? Það vantar ennþá nokkra krakka og því er Ósk ekki komin með leikfélagana sína ennþá. Reyndar fóru 2 stelpur yfir á aðra deild, deild sem er úti 4 daga vikunnar allt árið. Þær systur geta ekki verið á þeirri deild sökum astma. Með eins kaldann vetur og það var síðasta vetur þá hefði Ósk þurft að skipta um deild.
Íris Rós hætti að taka astmalyfin í lok júní en hún þurfti að byrja aftur í gær (föstudag) :( Það er greinilega eitthvað í loftinu sem hún þolir ekki eða fer illa í hana. Það á kanski að gera ofnæmispróf á henni í haust eða eftir 1 ár, sjáum til hvað læknirinn segir er við hittum hann í október.
Annars er bara allt voða jollí. Fyrirtækin hjá Trausta virðast ganga vel, allavegana er hann alltaf inni í tölvuherbergi, spurning með að setja sófa þangað inn svo hann geti lúllað þar líka ;)
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað about 1 month
Það er nákvæmlega ekki neitt að gerast hjá okkur þessa dagana!
Ég fór reyndar í dag og keypti 2 rennihurðir yfrir fataskápinn í ganginu. Keypti ekki innmatinn en það kemur seinna. Hurðarnar voru á tilboði og það tekur 3 vikur að fá þær ;)
Íris Rós byrjar á stórubarnadeildinni á mánudaginn og er hún frekar mikið spennt! Hún tilkynnir oft á dag að hún geti hitt og þetta því hún sé orðin svo stór stelpa ;) Hún þykist meira að segja geta skeint sig sjálf!
Ósk hefur sagt það í nokkuð langan tíma að hún vilji ekki göt í eyrun fyrr en hún verði 6 ára, það nýjasta er að hún vill fá göt núna! Hún vill ekki bíða þangað til hún verður 6 ára. Við sjáum til hvað gerist er ég verð í fríi næst ;)
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað about 1 month
Tengdamamma kom í heimsókn á fimmtudaginn. Svaka stud hjá stelpunum, thær hlupu á móti henni í ganginum heima. Thad rigndi thad mikid ad fimmtudagurinn fór í leti ;)
Á föstudaginn var amma plötud í búdarráp, held ég ad hún sé fegin ad thurfa ekki ad fara ein med stelpurnar í búdir ;)
Á laugardaginn voru stelpurnar skyldar eftir hjá födur sínum og ég og tengdó fórum í Living og Ikea. Thetta eru búdir sem mjög erfitt er ad fá Trausta med mér í.
Sunnudeginum var svo eytt á Hadeland glassverk. Ósk jr fékk ad blása sitt eigid glas/vasa og var hún ekkert smá stolt, ljómadi öll.
Íris Rós var ekki eins ánægd ad fá ekki ad blása thví hún er jú ordin stór stelpa, byrjar á stórudeildinni brádum og er næstum alveg hætt ad pissa í koppinn!!!! ;)
Ég er loksins búin ad setja inn allar myndirnar af amerísku bílunum og munu thví fljótlega koma inn myndir af stelpunum ;)
Höfundur : Elsa Þóra , skrifað about 1 month
Fyrstu helgina í júlí gerðum við næstum því jafn mikið og allt sumarfríið mitt ;) Á laugardeginum var farið í Amadeus parken rétt hjá Hamar. Stelpunum fanst svaka gaman og ekki var verra að það voru plasthús, rennibrautir og hoppikastali í endanum á garðinum! Það var ekki auðvelt að fá stelpurnar heim hehe.
Á sunnudeginum var farið að skoða ameríska bíla í Lilleström. Margir flottir bílar og mikið af fólki enda var veðrið geggjað! Við þurftum að færa okkur því stelpurnar voru farnar að hósta í menguninni ;)
Á mánudeginum var svo farið til Drammen og Kongsberg. Í Drammen var stoppað í bakaríi og keyptir snúðar og vínarbrauð plús eitt brauð bara svona til að pruaf. Snúðarnir voru mjög góðir, það vantaði möndlurnar á vínarbrauðið annars mjög gott en brauðið var bara venjulegt norskt brauð. Það verður ábyggilega farið aftur seinna, tekur innan við klukkutíma að keyra ;)
Í Kongsberg var farið til Liv, hún var með mér í bekk í Dovre og höfum við verið á leið til hvor annarar síðastliðin 7 ár ;) Það var alveg einsog við hefðum hist síðast deginum áður. Kjaftað endalaust hehe
Ég var að vinna síðustu helgi og voru Trausti og stelpurnar í rólegheitunum heima.
Tengdamamma er svo að koma á fimmtudaginn og hlakkar stelpunum mikið til. Enda alveg að koma 3 ár síðan hún var síðast í heimsókn. Við munum finna eitthvað skemmtilegt að gera á meðan tengdó er hérna.
Ég er búin að setja inn myndir af amerísk bílunum, í eigið albúm. Einhver mun ábyggileg furða sér á því af hverju ég sé að setja inn allar þessar myndir en þessar myndir voru teknar fyrir hann föður minn sem finst mjög gaman að skoða þessa bíla. Hann varð 17 ára í hvert skipti sem við fórum að skoða þessa bíla ;)