Jæja þá erum við búin að kaupa allar jólagjafirnar, ekkert stress á flugvellinum né á Þorláksmessu :) Þetta er yndislegt líf, reyndar er Trausti eitthvað ad kvarta yfir því að hann muni ekki hafa neitt að gera á flugvellinum né á Þorláksmessu hehehehehehe
Ég fékk eldavélina lánaða í dag, ekkert smá heppin. Reyndar þurfti ég bara bakarofninn, eigandinn var eitthvað að vonast til að fá það sem eyðilagðist en því miður þá eyðilagðist ekki svo mikið. Það sem eyðilagðist var ekki mér að kenna heldur þeim sem sendi mér uppskriftina!!! Þannig að Trausti situr núna fyrir framan imbann og borðar mjög sæta svampbotna ;)