Það er búið að snjóa meira eða minna síðan við komum heim, reyndar var búið að snjóa í 2 daga áður en við komum. Trausti mokaði bílinn út úr snjóskaflinum í gærkvöldi, greyið bjóst við að vera ca 1/2 tíma að þessu en þetta varð að 1 og 1/2 tíma, bíllinn var víst lærri en hann minnti ;)Við fengum snjóskóflu í jólagjöf frá Marit og fólkinu hennar, jólagjöf sem hefur komið að góðum notum undanfarið :) Póstkassinn okkar er í tætlum inni í bílskúr, það var víst sett raketta í hann á gamlárs en við fengum nýjann frá Marit og fam, eigum núna hvítann og flottann póstkassa en allir hinir eiga græna, gamla og ljóta :) Rúmið er að sjálfsögðu algjör draumur, mjög erfitt að fara á fætur á morgnana :)