Höfundur : Trausti Þór, skrifað over 2 years
Jæja. Smá fikt. var orðinn frekar mikið þreyttur á gamla gráa bakgrunninum og ákvað að breyta útlitinu smá.
Nýjar stafagerðir og nýjir litir. Það eru einhverjir íhaldsömustu notendur á veraldar vefnum sem lesa þessa síðu svo ég geri ekki allt í einu.
Eitt sem skal breytast, og það fljótlega er að það mun verða mun einfaldara að kommenta.
Eitthvað annað sem vantar ?
Vala
over 2 years
Pínu erfitt að lesa ljósbláu stafina finnst mér, það er kannski bara of bjart hérna núna;)
Trausti Þór
over 2 years
Ég náttúrulega var truflaður í vinnunni með að gera síðuna, en ákvað að prufa aðeins að lýsa bakgrunninn. Hann verður hvítur eitthvað um sinn, en hve lengi er ekki vitað.
Mér líkar við nýju fontana og stafa stærðirnar, svo það breytist ekki að sinni.
Leiðinlegt hve það er eiginlega enginn annar sem gerir sína eigin síðu lengur, erfitt að herma eftir og fá hugmyndir. Ég vil ekki hafa bara enn eina síðuna sem gerð er með wordpress
sigrún ásta
over 2 years
Frábært framtak einmitt að gera sína eigin síðu!! Kudos to you :)
En ég og Bóel vorum búnar að skella inn nokkrum ábendinum um síðuna hérna um daginn.
Ásdís Erla
over 2 years
Já sæll flott að breyta til.
Það vantar "til baka" takka, mættir hafa bakgrunninn aðeins drappaðri svo að maður verði ekki eins þreyttur í augunum. Stafastærðin er fín en ? hvort þeir þurfi að vera boldaðir. Mættir hafa myndirnar aðgengilegri líka, ég skoða myndirnar en vildi gjarnan geta farið til baka í aðalval í myndum.
Annars til þess að hrósa þér þá er þetta mjög fín síða og gott að koma og lesa sér til um ykkur, kannski væri jafnvel hægt að hitta ykkur í eigin persónu við gott tækifæri =O)
Knúsaðu brúneygðu dúllurnar frá mér
Elsa Þóra
over 2 years
Ásdís Erla við komum til Íslands á morgun. Ertu heima næstu 15 dagana eða svo??? ;)
Þá færðu að sjá brúneygðu prinsessurnar í eigin persónu hehe
Sigríður Þóra
over 2 years
Þetta er voða fínt hjá þér og bláu stafirnir eru flottir. :)
En það eina er að bakgrunnurinn og gráu stafirnir eru aðeins of líkir, maður verður soldið þreyttur í augunum :S
Bóel
over 2 years
Tek undir ábendingar frá Sigrúnu Ástu og Sigríði Þóru :)
Væri fínt að það væri hægt að ýta á myndirnar hér til hliðar og fara beint inní albúmið.