Logo

Velkomin heim til okkar

Fara til baka

Geggjað veður

Höfundur : Trausti Þór, skrifað over 2 years
Alla síðustu viku og þessa viku hefur verið rétt undir 30 stiga hiti, það hreyfir ekki vind. Þetta er alveg eins og að vera á Portúgal eða Ítalíu. Mér líkar þetta svakalega vel ásamt Ósk og Írisi sem bara fíla það í botn að vera á stuttbuxum allan daginn. Eini gallinn við þetta er að það er rúmlega 20 stiga hiti um miðnætti, sem er í heitara lagi er maður reynir að sofna, en einhvern veginn tekst þetta hjá manni og ég hef náð að senda stelpurnar í leikskólann og mæta fyrir klukkan 9 í vinnuna, eins og á að gera.

Ég var heima með stelpurnar alla síðustu viku. Svaka gaman hjá okkur. Við fórum til Halldórs og Heiðdísar og lékum okkur við börnin þeirra og þau eru með stóra uppblásna sundlaug sem var algjört æði fyrir stelpurnar (ég og Halldór vorum að ræða og skoða ágæti blue ray hágæða dvd mynda og playstation 3).

Stelpurnar eru alveg að blómstra núna, þær eru svakalega góðar vinkonur þó að önnur segi frekar oft "Ósk var slemm" sem þýðir að Ósk vildi ekki gera eitthvað og ef eitthvað er verið að prakkarast þá segir hin "já en Íris vildi / gerði þetta". Maður fær oft það á tilfinninguna að Íris ráði doldið þegar kemur að prakkara strikum og óhlýðni, annars ræður sú eldri.

Talandi um óhlýðni. Eiginlega sama hvað maður segir við Írisi þá horfir hún á mann með bros út í annað, hnykktar brýrnar og segir NEI pabba, NEI og gerir svo það sem hún vill. Maður segir að það sé ekki leyfilegt að fara út, augnabliki seinna er maður að ná í þær út á verönd. Íris er miklu verri í þessari óhlýðni en Ósk, en á móti kemur að Ósk getur opnað hurðarnar og stungið af. Einn morguninn voru þær komnar út í garð hjá nágranna okkar á trampólínið hjá honum. Ég hefði getað náð þeim en ákvað að klæða mig áður en ég hlypi út á brókinni.

Það er lítið sem þeim systrum dettur ekki í hug að gera, en eitt eru þær sammála um, foreldrarnir eru bara fyrir manni og skemmileggja allt sem er gaman. Ég hlakka ekkert smá til þegar þær eru eldri (hæðni)

Þessi frétt er með 0 komment






Tenglar
Nýjar myndir
Img_5190_thumb Img_5189_thumb Img_5188_thumb Img_5187_thumb Img_5186_thumb
Ýmsar myndir
Img_8223_thumb Img_1512_thumb Hpim1610_thumb Img_7999_thumb Img_5762_thumb
Nýjustu fréttirnar
Nýjustu kommentin
Vala
Hvenær á að flytja heim aftur ?
Sigrún Ásta
Leikur að læra
Elsa Þóra
Eldiviður
Sigrún Ásta
Eldiviður
Sigrún Ásta
Gullkorn Íris Rós
Nýjustu myndir með kommentum
Img_5099_thumb
Elsa Þóra
Myndasmiðnum finnst bara svo gaman að taka myndir ;)

Img_5104_thumb
mamma og amma
Einnig þessa sætu skólastelpu

Img_5105_thumb
mamma og amma
Líka þessa sætu krúsu ;)

Img_5107_thumb
mamma
Og ég á þennan sæta strák ;))) (en ekki alveg ein)

Img_5076_thumb
Sigríður Þóra
Tungan er bráðnauðsynleg til að gera þetta "move"!! Reyndu bara að setja á þig maskara án þess að opna munninn smá!! HAHAHAH ;) ;)

Img_5120_thumb
Sigríður Þóra
HAHAHA :)

Img_5049_thumb
Elsa Þóra
Amma Ósk gaf henni

Img_5061_thumb
Sigríður Þóra
Skvísur!! ;)

Img_4972_thumb
Sigríður Þóra
Stóra stelpan :D

Img_5028_thumb
Elsa Þóra
Passaðu þá að koma er það fer að hlýna svo hægt sé að sitja úti ;)

Img_4577_thumb
Bóel
Krútt :)

Img_5020_thumb
Elsa Þóra
hehe ég líka ;) Búin að prufa að hafa pullu og sitja og lesa bók, það var frekar ljúft ;)

Img_3903_thumb
Elsa Þóra
Hún er bara upptekin við að borða

Img_3885_thumb
Elsa Þóra
Takk takk. Þeim finnst báðum voða gaman að hjálpa til. Ósk elskar að fara út með ruslið hehe

Img_3860_thumb
Elsa Þóra
Vertu ekki að neita því sem vitað er hehe

Img_3840_thumb
Elsa Þóra
Dugleg einsog móðir sín ;)

Img_3862_thumb
Sigríður Þóra
Maður notar bara það sem hendi er næst!! ;) Úrræðagóður drengur bara heheh

Img_3823_thumb
Sigríður Þóra
HAHAHA

Img_3800_thumb
Elsa Þóra
jamm hún fer líka í vist í vesturbæinn eftir nokkur ár ;)

Img_3767_thumb
Elsa Þóra
Já endilega

Img_3754_thumb
Elsa Þóra
Já alveg rétt hafmeyju mamman ;)

Valid XHTML 1.1