Íris Rós fór á læknavaktina í dag. Hún var niðri að leika er hún datt fram fyrir sig og datt beint á neðstu tröppuna. Hún fékk gat á ennið og það þurfti að sauma 2 spor. Hún var rosa dugleg hjá lækninum, var á fullu að leika sér á meðan við vorum að bíða eftir að komast að. Íris Rós grenjaði smá er hún fékk deyfisprautuna en annars var hún algjör hetja!
Er ég kom upp með Írisi Rós þá kom Ósk hlaupandi með plástur handa litlu systur, ég sagði henni að Íris Rós þyrfti að fá stærri plástur og fara til læknisins og láta sauma sárið alveg einsog var gert hjá henni á hökunni. Ósk horfði á mig í nokkrar sekúndur hljóp inná bað og kom til baka með stærri plástur!!! hehe
Við erum á fullu að tæma kjallarann þessa helgi. Baldur og Heiðbjört komu í dag og hjálpuðu til,. Þau verða reyndar að koma aftur á morgun því Íris Rós tafði okkur svo.
Myndir verða settar inn eftir helgi, er á kvöldvakt næstu viku