Höfundur : Elsa Þóra , skrifað over 2 years
Á ég að leyfa Ósk að fá göt í eyrun??? 2 af hennar aðal vinkonum á leikskólanum eru komnar með göt, þær Tea og Aurora. Þær hafa ekki lent í neinum vandræðum á leikskólanum, þannig að það virðist vera óhætt. Ég hef mestar áhyggjur af því að einhver tosi í eyrnarlokkana.
Ég fékk göt rétt rúmlega 4 ára og lenti ekki í neinu veseni á leikskólanm en man eftir einni stelpu sem blæddi úr eyranu hennar því einhver hafði togað í eyrnarlokkinn. Það situr svolítið fast í mér, er því voða efins ;)
sigrún ásta
over 2 years
Ég styð göt í eyrun :) hef aldrei heyrt um neitt svona vesen sem situr svona líka fast í þér. Þetta hefur bara verið einhver villingur ;)
Ásdís Erla
over 2 years
Elísa fékk þegar hún var 4 ára, aldrei neitt vesen, hún fékk ekki lafandi lokka fyrr en 8 ára að mig minnir.
Sumir vilja meina að það eigi ekki að setja í börn út af auknum líkum á ofnæmi.
Passaðu bara ef þú leyfir henni að láta skjóta í bæði í einu. Elísa fór að gráta og konan í búðinni ætlaði að láta mig koma seinna og fá hitt gatið en ég neitaði og hélt henni. Var ekki sátt eftir á að gera þetta svona en hún gleymdi því strax og hún leit í spegil.
sigrún ásta
over 2 years
sammála, skjóta í bæði í einu. Þeim bregður svo við hvellinn þessum elskum :)
Elsa Þóra
over 2 years
Ég fékk annað í eynu og man eftir sársaukanum ;) En þetta var svo flott að það var þess virði hehe
Aurora fékk götin með 3ja mánaða millibili!! Götin í Tea var gert samtímis.
Trausti Þór
over 2 years
Ósk má fá lokka fyrir mér. Íris er of mikill fiktari ennþá en hún má fá ef hún er ósátt með að vera skilin útundan.
En Ósk verður auðvitað að spyrja sjálf.
Ég hreinlega man ekki eftir því hvað Bóel var gömul, 3 ára held ég, en mamma kannski leiðréttir það
Kata
over 2 years
Ég myndi a.m.k. bíða þar til hún uppgötvaði þetta sjálf og færi að biðja um að fá eyrnalokka í eyrun.
Sandra
over 2 years
Voðalega er allt götótt hjá ykkur þessa dagana. Göt á hausinn og göt í eyru;D
Sumarkveðjur frá Eskilstuna