Höfundur : Trausti Þór, skrifað over 2 years
Yfirvaldið hefur sagt að við séum að flytja til Englands, í húsið við hliðina á Sollu frænku.
Hún Ósk er mjög ósátt með að Solla sem er jú jafngömul sé byrjuð í alvöru skóla á meðan hún er látin hanga í bara leikskóla. Svo hún vill að allir flytji til Englands, og það strax (pabbinn er ekkert svaka mikið á móti þessari hugmynd).
Að vera með minna en 2 daga á ári með mínus gráður er bara hið besta mál.
Ósk tekur þetta skólamál ekkert með léttu hugarfari, hún er farin að læra heima líka. Tók upp litabækur og svoleiðis og tilkynnti það að hún væri að læra heima.
Þá er það bara spurning hvenær við byrjum að pakka ?
Óskar
over 2 years
Brenndu bara draslið og málið er dautt. Kaupir bara nýtt hjá Betu drottningu.
Þú ert alltaf velkominn til UK.
Elsa Þóra
over 2 years
af hverju kom þetta svar mér ekki á óvart Óskar????
Jón Fannar
over 2 years
Heh.. Það eru komin 10 ár frá árshátíðarferðinni til UK með Tali... Hugsa að þeir fari nú að leyfa Trausta að vera í Bretalandi lengur en viku í einu núna :-) Syndir hans ættu að vera að fyrnast þessa dagana...
Trausti Þór
over 2 years
Nonni : Áttu ennþá Ciro Citterio ? Að við keyptum okkur á sama stað á sama tíma, saman, alveg eins jakkaföt og tókum aldrei eftir því, ekki á djamminu, ekki á meðan við vorum út um allt finnst mér ennþá amazing.
Elsa Þóra
over 2 years
Þið eruð líka svoddan nörd báðir tveir. Við Rósa ættum að fá orðu fyrir að búa með ykkur ;)
Beggó
over 2 years
Þetta hljómar vel, nú skal ég gera mitt besta í að flæma nágrannana úr húsinu við hliðina á okkur, til að það sé nú örugglega laust þegar þið komið :)
Jón Fannar
over 2 years
@TJ - Nei, því miður á ég þau ekki lengur - en þau dugðu reyndar asskoti lengi, var kominn með hundleið á þeim :) En þetta var nokkuð merkilegur fjandi...
Elsa Þóra
over 2 years
Beggó ég efast nú um að við flytjum til Englands, ég hef ekkert þangað að gera. Kann ekki tungumálið og mun ábyggilega ekki fá neitt að gera nema Macdonalds eða eitthvað álíka ;)