Höfundur : Trausti Þór, skrifað over 2 years
Síðustu daga hefur verið draugur í húsinu. Allskonar hljóð og vitleysa, ljós að dimmast og birtast, heimasíminn verið að pípa og klukkan á eldavélinni verið að senda það sem virðist vera morse kóði, tikk tikk dash tikk tikk....
En eins og alltaf þá reyndist þetta ekki vera draugagangur heldur að það var eitthvað að rafmagninu í húsinu. Ingi var vakinn upp rétt fyrir klukkan 1 eftir miðnætti og spurður út í þetta. Daginn eftir hringdi ég í Hafslund (Rarik?) og þeir mættu á staðinn og fundu út að þetta hlyti að vera vesen innan í húsinu. Ingi fór yfir alla töfluna heima og fann ekkert að.
Eftir mikla leit þá var allt í einu munað eftir rafmagnstöflu uppi á háalofti. Inga leyst ekki á blikuna því að eitt tengið var að brenna upp og vír að bráðna. Ef ekkert hefði verið gert og við hringt í prest frekar en Inga, þá hefði kofinn fuðrað upp að öllum líkindum.
Einn nágranninn á son sem er rafvirki og mætti hann ásamt hafslund í morgun, tóku rafmagnið af húsinu og settu alvöru rafmagnstöflu á háaloftið og fjarlægðu alveg keramík öryggin sem voru sett inn þarna fyrir 30 árum síðan.
Allt bendir til að elding hafi slegið niður í húsið eða nálægt því (ekki óalgengt), og við hringdum þá í tryggingafélagið. Eins og alltaf þegar eitthvað tjón kemur upp hjá okkur, þá er sjálfsábyrgðin sú sama og tjónið er. Þannig að miðað við síðasta pistil, þá á maður bara að selja kofann, segja upp trygginginunum og fara til Breta lands.
Ásdís Erla
over 2 years
Heppin =O) eins gott að það kviknaði ekki í. En er þetta UK dæmi ekki bara eitthvað kjaftæði, held að Ósk yrði ekki lengi um að biðja um að flytja aftur.
Jón Fannar
over 2 years
UK! Miklu betri öryggi þar ;)