Höfundur : Elsa Þóra , skrifað over 2 years
Smiðurinn kom í gærkvöldi með plastparketið á bæði kjallarann og efrihæðina. Við ætlum að hafa eins bæði uppi og niðri. Búið er að mæla alveg fyrir stiganum þannig að hann er í vinnslu. Allt bendir til þess að kjallarinn verði búinn í byrjun okt :) :)
Við verðum svo að fara að senda bréf til sveitarfélagsins og fá samþykkt breytinguna á eldhúsglugganum. Með þessu áframhaldi þá verð ég komin með nýtt hús fyrir næsta sumar.
Kannski við ættum svo bara að breyta garðinum næsta sumar og setja svo húsið á sölu?!?!?! hehehe
Íris Rós var með hita í morgun og var því heima. Ósk vildi líka vera heima þannig að Trausti var heima með stelpurnar í dag.
Fjölskyldan fór í bíó í gær, sáum G-force. Íris Rós var kannski aðeins of ung en þær voru algjörir englar. Sátu í sætunum og heimtuðu nammi, popp og kók ;)
Kata
over 2 years
Frábært að það gangi svona vel hjá ykkur í breytingunum. Verður gaman að sjá útkomuna þegar allt verður tilbúið.
kv.
Kata
Vala
over 2 years
Jeiii, verður gaman að sjá næst þegar við komum í heimsókn:D Þú verður að muna að halda þig í 2007 dæminu alveg út....selja svo húsið næsta haust og kaupa annað og gera það svo allt upp....hehehe
Elsa Þóra
over 2 years
Já Vala ætla að halda þetta út, fara alla leið ;)
Kata þú verður bara að KOMA og sjá allt saman ;)
Trausti Þór
over 2 years
Til að vera 2007, þá verð ég að setja húsið á sölu, og á meðan það er óselt, þá kaupi ég nýtt hús og tek lán til að endur uppgera það allt saman og hugsanlega kaupi annan bíl án þess að selja hina.
Gaman að þessu
Vala
over 2 years
Já og þú verður að passa að selja EKKI húsið samt strax því þú verður að vera með bæði í uppgerð. Mundu svo að kaupa líka villu.....ekki eitthvað lítið hús;)
Þú verður að halda þetta út Elsa Þóra, þú getur þetta....hef fulla trú á þér hehehehe:þ
Elsa Þóra
over 2 years
Ég fæ pepp hjá þér Vala reglulega svo ég haldi þetta út ;)
Vala
over 2 years
Koma svo...þú getur þetta!!!! ;)
Heiðbjört
over 2 years
Það verður gaman að sjá þetta þegar allt verður tilbúið.
Elsa Þóra
over 2 years
Ójá, ég er meira spennt fyrir þessu en jólunum ;)
Vala
over 2 years
Koma svo.....ég veit þú getur þetta;) Muna 2007;)