Höfundur : Elsa Þóra , skrifað over 2 years
Var að bæta við nýjum myndum af kjallaranum. Allt er að gerast þarna niðri, þeir eru byrjaðir að setja rafmagnsnúrurnar og dósir :)
Myndirnar frá leikskólanum eru komnar í hús, við þurfum svo að velja hvað við viljum kaupa hehe svo auðvelt???
Við fórum á laugardaginn á fjölskyldudag á flugvellinum. Allir sem starfa á flugvellinum gátu fenið að taka 4 fjölskyldumeðlimi með sér og skoða flugvöllinn, skoða flugvélar að innan, setjast upp í slökkviliðsbílana, fá að halda á byssum hjá löggunni og margt fleira. Ég veit ekki hvor fannst skemmtilegra Trausta eða stelpunum?!?! Trausti settist í öll flugstjórasæti sem hann komst í ;) Það er takmarkað hversu margir fá miða, það var talað um hátt í 2000 manns.
Það myndir frá deginum seinna, þær myndir eru í simunum okkar Trausta. Ég fæ vonandi Trausta til að hjálpa mér að skanna inn allar myndirnar sem teknar voru á leikskólanum svo ég geti sett þær inn hérna.
Heiðbjört
over 2 years
vá hvað þetta verður mikil breyting. Við þurfum að fara að kíkja í heimsókn til ykkar
Vala
over 2 years
Gaman að sjá myndirnar úr kjallaranum:D
Hefur greinilega verið svaka fjör hjá ykkur á flugvellinum.....er TJ kannski að spá í að skella sér í flugmanninn bara?;)
Elsa Þóra
over 2 years
Já endilega Heiðbjört, langt síðan síðast.
Vala það er sko aldrei að vita hvað kallinn gerir, hann var einsog lítill strákur ;)