Höfundur : Trausti Þór, skrifað over 2 years
Ég hef lýst yfir stríði á hendur öllu einnota plasti sem er selt sem margnota. Þá er ég að tala um drasl eins og dvd myndir og cd tónlistar diskar.
Þetta rispast út í eitt bara við að spila þetta í spilara. Þó maður reyni að eiga þetta og fara varlega með þetta, þá bara skemmist þetta. Ekki bætir úr skák þegar maður er með tvær litlar stelpur sem finnst diskarnir ekkert smá flottir og skemmtilegir. Gaman að leika sér með þá og skoða myndirnar þó svo að pabbi láti heyra í sér þegar hann góma okkur eða þegar hann tekur diskana upp úr gólfinu og gengur frá.
Ég byrjaði verkið og hef nú sett inn allar kvikmyndir inn á netþjón sem ég á í kjallaranum. Þrátt fyrir góðar áætlanir þá fylltist hann frekar fljótt. Ég fór þá út og keypti fleiri harða diska, en kassinn rúmaði bara 5 diska, svo ég keypti svonefnt diska hús, sem dó, eins gott að ég var ekki byrjaður að nota það. Þá var farið út og keyptur alvöru kassi. Kassinn rúmar um 20 harða diska. Ég er núna með 9 harða diska í þessu. Í stuttu máli má áætla að hver fullur kvikmynda dvd diskur sé um 6 gígabæti, ég get sem sé geymt á diskunum eitthvað um 820 kvikmynda diska. Ekki slæmt.
Einnig hef ég keypt mér sjónvarpsseríur og sett inn, ásamt því að taka afrit af ferðavélunum og fleira og fleira.
Núna er planið að klára að setja inn friends og alla músík diska líka.
Þetta tekur allt saman svakalega mikinn tíma, en það góða með músíkina á móti kvikmyndunum er að ég get notað mun fleiri tölvur í þessa vinnu.
Svo þegar þessu er lokið, þá mun ég geta spilað allar myndirnar mínar og hlustað á tónlistina mína, allt í fullum gæðum án þess að plast draslið eyðileggist.
Afhverju að vera að henda miklum peningum og vinnuí þetta ? Jú, við hjónin eigum rétt undir 200 dvd kvikmyndir, auðveldlega 100 diskar ofan á það sem sjónvarpseríur, segjum 400 dvd diskar. Ég átti um árið eitthvað um 150 tónlista diska og Elsa Þóra eitthvað álíka, 300 þar.
Gefum okkur að hver einn og einasti diskur kosti 100 kr norskar sem er ágætis jafnaðar tala, en mig grunar að þessi upphæð sé í raun of lág. En (350 dvd diskar + 300 cd diskar ) * 100 eru 65.000 norskar krónur eða umþb 1.3 milljónir íslenskar krónur. Netþjónninn kostar bara brot af þessari upphæð. Þetta er verndun á fjárfestingu.
Þetta er bara of mikils virði að láta þetta ekki eyðileggjast. Einnig einfaldar þetta allan aðgang að öllu efninu. Auðveldara að njóta tónlistarinnar og skemmtilegra að finna myndir til að horfa á, einfaldari aðgangur og ekkert skemmist.
Allir ættu að gera svona kerfi
Vala
over 2 years
Dugnaðurinn:)
Kjallarinn verður geggjaður hjá ykkur! Hlakka ekkert smá til að sjá hann í desember:D