Höfundur : Elsa Þóra , skrifað over 2 years
Við stelpurnar fórum í dag í smá labbitúr í skóginum. Þær hoppuðu í ÖLLUM pollum sem þær fundu og reyndu að festa sig í mýrinni ;) Íris Rós datt að sjálfsögðu í mýrina og varð ekkert smá drullug en voða ánægð ;)
Smiðirnir eru alltaf að nálgast endirinn merira og merira. Þetta fer allt að koma. Þeir mála örugglega tölvuherbergið næstu daga og aðra umferð yfir hina veggina. Hann vill ekki setja á gólfið fyrr en allt annað er búið. Hann vill meina að það komi alltaf ryk frá parketinu ef það er sett á áður en öll rykvinna er búin. Þeir munu klára líka stigaopið. Mig er farið að hlakka mikið til að sjá stigann, vonandi eru ekki margir mánuðir áður en hann kemur :D
Það er farið að kólna hressilega á næturnar. Ég hef ekki ennþá þurft að skafa en það kemur að því. Því miður þá getum við ekki hitað húsið með ofninum í kjallaranum fyrr en þeir eru búnir eða komnir aðeins lengra. En það verður ljúft líf ;)
Trausti Þór
over 2 years
Versta með að þeir nálgast endirinn, er að við hjónin færum endirinn alltaf. Alltaf að bæta við og breyta. Fengum hann til að skoða það að sklára ganginn, stofuna og eldhúsið.
Alltaf gaman að gera þetta þegar stórir hlutir eru að gerast prívat sem breyta öllu (nánar um það síðar þegar ég veit allt)
Óskar
over 2 years
Elsa verður gestaálman ekki klár þegar við feðginin komum um mánaðarmótin? Annars þarf ég að ræða við þig varðandi útfærslu á þessu.
Ég tek með myndir sem við förum yfir. Mér þætti sterkur leikur að hafa Quarksbar merkta inniskó og baðsloppa. Einnig væru merktir pennar og skrifblokkir ágætt
Elsa Þóra
over 2 years
Það ætla ég að vona. Trausti verður látinn tala við smiðinn og setja smá pressu á þetta.
Hlakka til að sjá myndirnar. Sloppurinn, handklæðin og inniskórnir verða því miður ekki tilbúin. Litlu börnin í Kína hafa víst frekar mikið að gera þessa dagana.
Elsa Þóra
over 2 years
Það er búið að steypa gólfið í tölvuherberginu!! :)