Höfundur : Trausti Þór, skrifað over 2 years
Jæja, þá er ekki aftur snúið.
Í miðri kreppu eymdar og volæði í heiminum hef ég ákveðið að hætta í vinnunni minni og sagði upp. Ég er að fara að vinna hjá sjálfum mér við ráðgjöf, forritun og rekstur. Núna vantar mig nafn á fyrirtækið en allt annað er klappað og klárt. Er hægt að finna verri tíma til að gera svona lagað ? Ég efast um það. Er hægt að finna betri tíma til að gera þetta, ég held ekki. Þetta er langsamlegast besti tíminn til að gera þetta á versta tímapunkti. Þetta hefur blundað í mér lengi. Ég hef aldrei verið sáttur við að komið sé fram við mann eins og rollu í rétt. Setja reglur og reglugerðir um hluti sem eru sjálfsagðir. Reyna að mæla það sem ekki er hægt að mæla. Núna er bara fullt áfram og njóta ferðarinnar.
Það er svo mikið skemmtilegt að gerast í dag þar sem maður verður hreinlega að vinna sjálfur við. Ruby on Rails, iPhone forritun, vefsíðugerð, forritun. Ég er ekkert að verða yngri svo það er hreinlega núna eða aldrei
Vala
over 2 years
Til hamingju með þetta:) Gangi þér bara rosalega vel:)
Óskar
over 2 years
Núna skil ég afhveru Elsa vill fresta þessu með að kaupa sloppa og eyrnaskó merkta Quarksbar.net í gestaálmuna. Þegar maður sér 2 + 2, þá ætti maður að kveikja á perunni og fá út 4 geri ég ráð fyrir.
Elsa Þóra
over 2 years
Rétt Óskar, allt verður merkt nýja fyrirtækinu ;)
Vonandi kemst TJ að einhverri niðurstöðu fljótlega, fer að verða þreytt á nafna spurningum ;)
doddi
over 2 years
Ju thetta eru godar frettir. Nu er bara ad keyra verkefnid afram og bua til peninga. Her eru nokkrar hugmyndir af nafni: Tlog, TJ consulting, Mister T Group, Trjo Ltd. og eitthvad meira...
Jón Fannar
over 2 years
Flottur.. :) Léttgeggjaður í kreppunni, svona fer hún með suma...