er í voða uppáhaldi hjá Ósk þessa dagana. Eiginlega síðan í sumar, þetta er eitthvað sem hún lærði á leikskólanum því ekki heyrir hún í Alexander Rybakk heima hjá sér. Allavegana hann var að spila í sjónvarpinu áðan og Ósk að horfa á en allt í einu stekkur hún upp og hlepyur inn í prinsessuherbergi og nær í lítið píanó!!!! Hún sest og byrjar að spila undir á meðan Alexander Rybakk spilar!! Þetta var frekar mikið fyndið ;) Tók nokkrar myndir sem verða settar inn við tækifæri um svipað leyti og myndirnar af tölvuherberginu með gólflistanum.
Ég spurði smiðinn í síðustu viku hvenær hann myndi klára og hann sagðist verða búinn eftir viku, þannig að eftir 2 vikur mum kjallarinn verða tilbúinn ;)
Hehehe, ég sé TJ alveg fyrir mér með Rybak í botn;) Sé hann nærri því fyrir mér taka nokkur spor með fiðlu um stofuna í leiðinni;) hehehe
Elsa Þóra
over 2 years
TJ er nú ekki svo hrifinn af honum Alexander. Ég efast um að pabbinn fari með dætur sínar á tónleika með Alexander, held að mamman verði að gera það ;)
Vala
over 2 years
Svo sá ég líka fyrir mér þig taka Alexander Rybak og að TJ sjái um Hallingdansinn...hehe það væri nú svolítið skemmtileg sjón hehe;)