Höfundur : Trausti Þór, skrifað over 2 years
Það var allt hvítt úti í morgun af blautum slabb snjó. Ósk kom að mér og sagði, veistu hvað pabbi, það eru að koma jól.
Strigaskór eru ekki til þess fallnir að labba í slabbi, tærnar sparka vatni upp fyrir sig og maður verður blautur á ristinni.
Mig hlakkar til þegar haustið er búið. Af árstíðunum 4 þá þoli ég ekki vor og haust, því þá er blautt og kalt, það blæs meira og er napurt og miklar hita sveiflur. Ég dýrka góð sumur og vetur sem haldast. Það er meira en í lagi að það sé hellings snjór og 15-20 gráður í mínus, það er ekkert kalt, það er mun kaldara í kringum frostmark, og það kemur mikil birta af snjónum (þeir sem búa á höfuðborgar svæðinu verða bara að trúa því). En ég er þvílíkur hita kall, ég vil sumar og sól alltaf. Verst hve það er erfitt að flytja til Hawaii og að engin lönd við miðjarðar hafið hafa hátækni fyrirtæki.
Ef mér tekst að verða árangursríkur iPhone og vef forritari, þá skiptir í raun engu máli hvar maður býr. Ég gæti búið jafnt á Palermo á Ítalíu og átt hús á Seyðisfirði.
Jón Fannar
over 2 years
Ísrael er við miðjarðarhafið...?
Trausti Þór
over 2 years
Með að búa við miðjarðar hafið er ég þá að meina frekar rólegann stað, ekki akkúrat stað með skriðdrekum á, því þá væri örugglega hægt að gera flott kaup á landiog húsnæði í írak ef því væri að skipta :)