Höfundur : Elsa Þóra, skrifað about 2 years
Erna, Eggert Rafn og Jón Þór komu á föstudaginn. Búið að vera svaka gaman hjá stelpunum.
Það var frí í leikskólanum á föstudaginn þannig að Erna og strákarnir fengu þann heiður að passa stelpurnar í nokkra klukkutíma?!?!?! Er Trausti kom heim þá voru strákarnir sofandi niðri, Erna sofandi á sófanum og stelpurnar að horfa á sjónvarpið!!!! Ég hefði verið rekin á staðnum ef ég hefði gert þetta er ég var að passa fyrir Ernu á sínum tíma!!!
Jón Þór og Íris Rós stríða hvort öðru allan daginn, mjög gaman að horfa á þau ;)
Helgin er búin að vera voða róleg, reyndar fórum við Erna ásamt Heiðbjörtu og Oddbjörgu á handverkssýningu á laugardaginn. Heiðbjört og Ernu leist ekkert á er ég borgaði fyrir 5 tíma í stöðumælinn. Þær ætluðu sko ekki að vera svo lengi þarna inni, við Oddbjörg brostum bara ;) Við vorum þarna í 3 1/2 tíma!!! En þá vorum við líka orðnar frekar mikið þreyttar og svangar.
Við sjáum svo til hvað verður gert í vikunni, fer mikið eftir veðri og löngun
Vala
about 2 years
Tíminn er sko fljótur að líða á svona sýningum. Allt svo stórt og mikið að skoða og tíminn flýgur;)