Á fimmtudagskvöldið var Íris Rós frekar mikið heit og grenjaði í fanginu á pabba sínum. Þetta gekk svo yfir en ég var heima á föstudaginn því Íris Rós var farin að hósta svo mikið.
Er ég var að gefa henni meðalið á föstudagsmorguninn var mér litið í eyrað á henni og sá þurran eyrnarmerg bæði inni í eyranum og á eyranum sjálfu. Ég ljóskan hringdi á læknastöðina og spurði hvort það væri möguleiki á því að vökvi rynni úr eyra á barni. Þar var mér tilkynnt að hljóðhimnan á barninu væri sprungin og hún þyrfti að mæta í skoðun eftir 8 vikur til að ath hvort hljóðhimnan gréri rétt. Svo er fólk að kvarta yfir börnunum sínum er þau fá eyrnarverki og er hljóðhimnan springur!??!?!?! Íris Rós kvartaði ekki neitt nema þessar nokkrar mínútur í fanginu á pabba sínum. Þetta er hörkukvendi sem ég á ;)
Annars eru báðar stelpurnar hóstandi, á ég von á því að það gangi yfir er við náum að þrífa húsið almennilega. Þær þurfa að þola þetta í 2-3 vikur í viðbót