Höfundur : Elsa Þóra , skrifað almost 2 years
Ósk er komin með hita og sáran háls :( Hún ætlar greinilega að fá það sama og ég. Hún byrjara meira að segja einni viku á eftir næstum upp á klukkustund!?
Ósk fór til læknis á föstudaginn, var hann að athuga á henni hjartað. Hún hefur stundum kvartað undan því hann henni væri illt í hjartanu og að það væri mikil læti og hávaði í því. Mamma hunsaði þetta lengi en ákvað svo að panta tíma hjá lækni og var hún send frá heimilislækninum til barnasérfræðings sem er hennar astmalæknir. Ósk fannst svaka stuð að fara og fara í öll tækin ;) Niðurstaðan var sú að hún má ekki fá mikið af ventolin (astmameðal) yfir daginn. Þetta er víst algengur fylgikvilli. Hún hefur ekki kvartað á leikskólanum því hún fær ekki svo oft meðal þar en við ætlum að láta leikskólann vita svo þær viti hvað þetta sé ef þetta gerist þar. Hún fær þennan auka hjartslátt á kvöldin því þá er hún komin yfir sinn skamt er við gefum henni.
Ég fór til læknis á fimmtudaginn og sú sem ég fór til vill meina að ég sé með kíghósta!?!? Ég má því ekki fara í vinnuna fyrr en á miðvikudaginn því þetta smitar auðveldlega. Kíghósti er eitthvað sem er að ganga í Gjerdrum vill læknirinn meina. Ég er samt ekki alveg sátt við þetta því læknarnir vildu meina er ég var lítil að ég hefði fengið kíghósta (eitthvað sem ég vissi ekki er ég fór til læknisins) mamma vill þó meina að þetta hafi frekar verið slæmur astmi en kíghósti. Sprautan sem ég og allir hafa fengið virkar víst ekki endalaust, við fáum held ég veikari einkenni en ef við hefðum ekki fengið sprautuna. Það var tekin prufa hjá mér og fæ ég að vita niðurstöðuna á þriðjudaginn.
Íris Rós er búin að hósta nokkuð lengi og gæti verið að hún sé með þetta líka, ef hún verður ekki skárri á mánudaginn þá verður hún send í prufu ég ætla þá að byðja að Ósk fari líka.
Það verður nóg að gera hjá Trausta að hjúkra okkur öllum ;)
Við fórum að borða á Kulturhuset í Gjerdrum í gærkvöldi og hittum fullt af Íslendingum. Ég taldi mig vera það fríska að þetta væri nú ekkert mál, er nefnilega á báðum áttum hvort læknirinn hafi rétt fyrir sér ;)
Í dag er ég aumari í hálsinum og eyrunum!! Ég var greinilega ekki orðin frísk. Ég var nefnilega með samviskubit í gær yfir því að mæta ekki í vinnu því mér fannst ekkert vera að mér ;) Ég er greinilega veikari en ég hélt!?!?
amma
almost 2 years
Æ æææ elsku stelpurnar mínar farið vel með ykkur
Elsa Þóra
almost 2 years
Takk amma, við skulum gera það :*
Kata
almost 2 years
Það er nefnilega málið að við höldum alltaf að við séum ekki eins veikar og við erum í raun, samviskan alltaf að pikka í okkur. Fór að ráðum doktorsins míns og var heima í alveg tvo daga og samviskan var að gera út af við mig, því ég er aldrei heima v. veikinda.
Elsa Þóra
almost 2 years
Það er ástæða fyrir því að fólk er í mörg ár að læra að verða læknir ;)
Vala
almost 2 years
Æjæj, god bedring til ykkar allra:)
Elsa Þóra
almost 2 years
Takk Vala. Vorum að koma heim af læknavaktinni, Ósk er með skarlatssótt!!
Vala
almost 2 years
Æj, greyið litla!!!