Logo

Velkomin heim til okkar

Fara til baka

Hvað er í fréttum

Höfundur : Trausti Þór, skrifað almost 2 years
Í nóvember 2009 þá hætti að vinna hjá VG og ákvað að fara út í sjálfstæðan rekstur. Ég stofnaði fyrirtæki sem heitir 305. Ég lenti í ákveðnu lúxus vandamáli. Það streymdu inn á mig atvinnutilboð og tækifæri svo ég guggnaði líka aðeins á sjálfstæða rekstrinum og fór að vinna hjá fyrirtæki sem sérhæfir sig í verkferlum með opnum hugbúnaði. En ég hafði eiginlega gert of góða grunn vinnu með sjálfstæða rekstrinum að ég fékk ekki frið og fékk nokkur verkefni sem ég ákvað að gera. Eitt leiðir að öðru og ég hætti núna um mánaðarmótin hjá fyrirtækinu og hélt áfram með að vera í eigin rekstri.

All þetta á meðan það er verið að endurbyggja allt húsið hjá manni, nýtt eldhús og stofa og gangur svo eitthvað sé talið fram. Húsmóðirin er doldið stressuð á þessu öllu saman, en fyrir einhverjar óskiljanlegar ástæður þá leyfir hún mér þetta.

Svo fór það að öll mín áhugasvið mættust, að vinna með Linux og Makka, ásamt því að forrita í Ruby on Rails og iPhone. Nokkrir viðskipta menn höfðu samband við mig í fyrra um að stofna fyrirtæki saman í kringum iPhone forritun með mig sem tæknistjóra. Þetta var mjög freystandi og ég hélt þessu volgu, sagði aldrei nei við þessu og bjó til eitt forrit á iPhone sem við settum inn á App Store hjá Apple (þeir einir meiga selja forrit fyrir iPhone).

Allt þetta gerðist í kringum áramótin, og ég gerði einnig annan vef fyrir viðskiptavin sem heitir Fotofix.no og fékk líka skemmtilegt verkefni í vinnunni hjá Freecode. Mjög mikið að gerast og eitthvað varð að gefa eftir, heilsan, geðheilsan, hjónabandið eða eitthvað annað og af nógu er að taka.

Útúr öllu þessu kom þetta. Í gegnum 305 fyrirtækið kynntist ég grafískum hönnuði sem ég kom í kynni við iPhone viðskipa mennina og fór svo að við stofnuðum hlutafélagið Appy AS. Ég er tæknistjóri þessa fyrirtækis ásamt því að reka 305.

Þetta er feikigaman að vinna svona hjá sjálfum sér. Ég hef aldrei verið fylgjandi fyrirtækja pólitík eða verið svokallaður fyrirtækja maður (company man). Ég er alveg að dýrka þetta og kem sjálfum mér á óvart með að ég get unnið heima fyrir og hef agann til að vinna langt fram eftir. Ég er líka með aðstöðu og tækjabúnað hérna sem gerir lítið úr mun stærri fyrirtækjum.

Þetta er alveg draumur í dós. Við erum komnir með 2 forrit í App Store núna og vonum innilega að seinna forritið taki nú heldur betur við sér svo fyrirtækið geti borgað almennileg laun. Svo eru einnig ótrúlega mörg tækifæri tengd 305.

Afhverju heitir fyrirtækið 305 ? Jú sko, maður nokkur Steve Jobs var rekinn frá Apple, fyrirtækinu sem hann stofnaði, 1985. Hann stofnaði þá um hæl annað fyrirtæki, NeXT. Þeir framleiddu fræga tölvu sem heitir NeXT Cube, sem er kassi og hann er 305 mm á alla kanta. Þess má segja að Next tölvurnar eru foreldrar allra Apple tölva í dag ásamt iPhone símanna og iPod. og Steve Jobs er sá sem á allan heiður skilið með að koma Apple upp í það sem það er í dag. Ég sagði svo mömmu frá þessu með nafnið og hún sagði þá á móti, en þú átt afmæli 3/05, passar það ekki miklu betur ? Jú það gerði það og miklu styttri saga á bak við það. Svo fyrirtækið stendur fyrir 3 maí :)

Mikið að gerast, mikið gaman.

Þessi frétt er með 5 komment






mamma

almost 2 years

Váá Vá það er aldeilis að gerast hjá þér


Elsa Þóra

almost 2 years

Svo ég fái ekki magasár avleg strax þá er ég farin að taka að mér aukavaktir ;)


Vala

almost 2 years

Til hamingju með þetta og gangi þér vel:D


Óskar

almost 2 years

Rétt skal vera rétt minn kæri, þú fékkst ábendingu um 305 nafnið og ef ég man rétt var hún ekki nafnlaus. Það þykir góður siður að geta heimilda.


Linda

almost 2 years

Glæsilegt! Innilega til hamingju með fyrirtækið;)


Tenglar
Nýjar myndir
Img_5190_thumb Img_5189_thumb Img_5188_thumb Img_5187_thumb Img_5186_thumb
Ýmsar myndir
Img_0003_thumb Img_1303_thumb Img_6793_thumb Img_0796_thumb Img_3821_thumb
Nýjustu fréttirnar
Nýjustu kommentin
Vala
Hvenær á að flytja heim aftur ?
Sigrún Ásta
Leikur að læra
Elsa Þóra
Eldiviður
Sigrún Ásta
Eldiviður
Sigrún Ásta
Gullkorn Íris Rós
Nýjustu myndir með kommentum
Img_5099_thumb
Elsa Þóra
Myndasmiðnum finnst bara svo gaman að taka myndir ;)

Img_5104_thumb
mamma og amma
Einnig þessa sætu skólastelpu

Img_5105_thumb
mamma og amma
Líka þessa sætu krúsu ;)

Img_5107_thumb
mamma
Og ég á þennan sæta strák ;))) (en ekki alveg ein)

Img_5076_thumb
Sigríður Þóra
Tungan er bráðnauðsynleg til að gera þetta "move"!! Reyndu bara að setja á þig maskara án þess að opna munninn smá!! HAHAHAH ;) ;)

Img_5120_thumb
Sigríður Þóra
HAHAHA :)

Img_5049_thumb
Elsa Þóra
Amma Ósk gaf henni

Img_5061_thumb
Sigríður Þóra
Skvísur!! ;)

Img_4972_thumb
Sigríður Þóra
Stóra stelpan :D

Img_5028_thumb
Elsa Þóra
Passaðu þá að koma er það fer að hlýna svo hægt sé að sitja úti ;)

Img_4577_thumb
Bóel
Krútt :)

Img_5020_thumb
Elsa Þóra
hehe ég líka ;) Búin að prufa að hafa pullu og sitja og lesa bók, það var frekar ljúft ;)

Img_3903_thumb
Elsa Þóra
Hún er bara upptekin við að borða

Img_3885_thumb
Elsa Þóra
Takk takk. Þeim finnst báðum voða gaman að hjálpa til. Ósk elskar að fara út með ruslið hehe

Img_3860_thumb
Elsa Þóra
Vertu ekki að neita því sem vitað er hehe

Img_3840_thumb
Elsa Þóra
Dugleg einsog móðir sín ;)

Img_3862_thumb
Sigríður Þóra
Maður notar bara það sem hendi er næst!! ;) Úrræðagóður drengur bara heheh

Img_3823_thumb
Sigríður Þóra
HAHAHA

Img_3800_thumb
Elsa Þóra
jamm hún fer líka í vist í vesturbæinn eftir nokkur ár ;)

Img_3767_thumb
Elsa Þóra
Já endilega

Img_3754_thumb
Elsa Þóra
Já alveg rétt hafmeyju mamman ;)

Valid XHTML 1.1