Höfundur : Elsa Þóra , skrifað almost 2 years
Ósk átti afmæli í gær og varð 5 ára! Hún fór á leikskólann í ca 4 tíma því hún er bún að vera slæm af astmanum undanfarið. Það var svaka stuð á leikskólanum og fékk hún Hello Kitty kórónu sem var búin að hanga á veggnum á leikskólanum í allavegana 2 vikur.
Er Trausti kom heim frá fundum í Osló þá var farið til Jessheim og í leikfangabúðina. Ósk fékk að velja hvað hún fengi í afmælisgjöf. Það fyrsta sem hún sá bar páskaegg pakkað inn í bleikann prinsessupappír. Það var erfitt að sannfæra hana um að hún fengi svona egg en mætti alveg velja eitthvað annað. Jújú það var labbað um og skoðað og að lokum þá endaði hún með Skellibjöllu kjól og eitthvað perludót með mynd af Skelliblöðru á kassanum ;) ;) ;)
Það er mjög erfitt að fá hana úr þessum kjól ;)
Íris Rós fékk líka pakka og fékk hún bleikann phony hest.
Eftir leikfangabúðina var keypt pizza á liðið. Mjög skemmtilegur dagur þar sem allir voru sáttir.
Aðalspurning Óskar núna er að vita hvenær hún verði 6 ára ;) Hún veit að er hún verður 6 ára þá missir hún tennur og fer í skóla. Hún vill í rauninni hoppa yfir 5 ára árið
Sigrún Ásta
almost 2 years
Sætust!! Til hamingju með knúsimúsina!
Linda
almost 2 years
Innilega til hamingju með stelpuna í gær;) Ég fattaði ekki að senda ykkur kveðju hér,heldur bara á facebook;)
Elsa Þóra
almost 2 years
Takk
Dóra
almost 2 years
Innilega til hamingju með prinsessuna :)
Elsa Þóra
almost 2 years
Takk Dóra
Sandra og fjölskylda
almost 2 years
Ég gleymdi að senda sms :/
Innilega til hamingju elsku Ósk okkar.
Kveðja Hildur Saga, Sandra og Gulli
Elsa Þóra
almost 2 years
Takk Sandra, ykkur er fyrirgefið ;)
Það sendi engin sms hvort eð er