Ég hef mikið spáð í afhverju maður er að halda úti þessari heimasíðu með ærnum tilkostnaði þegar facebook er ókeypis.
Málið er eiginlega það sama og með dagbækur. Hérna get ég skoðað alla söguna fram og tilbaka. Ég ræð sjálfur framsetningunni. En aðallega er málið að upplýsingarnar verða hérna áfram og drukkna ekki í öllu flóðinu. Hérna verðum við Elsa saman með að setja inn myndir og fréttir. Þetta er miklu einfaldara þó þetta sé ekki alveg eins þægilegt :)
Ekki set ég mikið af myndum á Facebook. Finnst alveg nóg að setja þær hér. Mér finnst líka gott að vita af því að eftir nokkur ár þá getum við litið til baka og lesið það sem við höfum skrifað. Það er ekkert öruggt að við getum það sama með Facebook.
Trausti Þór
almost 2 years
Við getum ekkert gert það á facebók.
Það er t.d. gaman að skoða myndir frá apríl síðustu ár og bera saman. Ég held það verði snjólaust þegar þú kemur til baka
Vala
almost 2 years
Svo annað, það eru bara ekki allir á facebook (þó það sé nú sennilega meirihlutinn;)). En alltaf gaman að kíkja hingað inn og geta lesið hvað þið hafið verið að bralla og ekki minnst að sjá myndirnar líka:)