Höfundur : Montna móðirin , skrifað almost 2 years
Af því að ég get montað mig þá geri ég það :)
Var í foreldraviðtali um daginn fyrir báðar stelpurnar.
Íris Rós er að standa sig mjög vel á öllum sviðum, þroskast vel og er alveg tilbúin til að flytjast upp á stóru deildina. Hún hefði í rauninni alveg getað flutt upp strax eftir áramót en það var ekkert laust pláss. Ég er búin að ákveða að hún fari á sömu deild og Ósk er á. Þær verða því á sömu deild í 1 ár.
Ósk er líka að standa sig mjög vel, hefur mjög góðann og mikinn norskann orðaforða. Er í rauninni á undan mörgum sínum jafnöldrum sem eiga báða foreldra norska. Í haust byrjar hún svo í "forskóla" Öll börn sem eiga að byrja í skóla haustið 2011 hittast 1x í viku í 1 1/2 tíma á dag og læra. Þau læra stafina og hljóðin þeirra. Þau eru nokkur á leikskólanum sem eru forvitnari en önnur börn og verða þau í sér hóp, Ósk verður í þeim hóp :) :) ;) Starfsfólkið ætlar að búa til sér verkefni fyrir þennan hóp, eitthvað sem hæfir þeim og veitir þeim þá áskorun sem þau þurfa. Ég á ekki von á öðru en að Ósk muni verða mjög sátt en hún býður ennþá eftir því að verða 6 ára og byrja í skóla þessi dúlla.