Í fyrra þá keypti ég og pabbi hjól á flóamarkaði handa Ósk, það var í stærri kantinum en barnið stækkar ;)
Í fyrra vildi hún ekkert hjóla sama hvað við reyndum. Í ár þá var ákveðið að hún skyldi hjóla!!! Hún er búin að reyna oft í ár en um leið og hún finnur að við sleppum henni þá hættir hún.
Í dag var hún greinilega tilbúin því er Trausti sleppti henni þá hélt hún áfram að hjóla. Hún hjólaði fram og til baka lengi! Núna er hún voða stolt af sjálfri sér og er byrjuð að plana hjólaferðir í götunni með nágrannastelpunni ;)