Höfundur : Trausti Þór Jóhannsson, skrifað over 1 year
Jæja, í dag er kominn enn einn glænýr quarksbar.net.
(Nördatal fyrir neðan)
Frá því að þessi vefur fór í loftið árið 2003 sem keyrði á gamalli ferðavél í fataskáp heima hjá mér þá hefur vefsíðan verið keyrð á PHP. En núna nennti ég loksins að gera hana í Ruby on Rails.
Ruby on Rails er ramma kerfi (framework) sem danskur viðskiptafræði nemandi skrifaði áður en hann varð milljónamæringur. Þetta kerfi notast við japanskt forritunarmál sem heitir Ruby og er algjör draumur í notkun fyrir forritara.
Þú tekur þó fljótlega eftir því að það vantar margar aðgerðir sem voru í gamla kerfinu, en ekki örvænta. Þetta er allt að koma ásamt fleiru.
Óskar
over 1 year
Ég er fyrstur til að crasha hérna inn. Má setja fæturnar uppá borð?
Elsa Þóra
over 1 year
Nei Óskar það má ekki setja fæturnar uppá borð
Trausti Þór
over 1 year
Jæja, þá held ég að vefsíðan nýja sé að verða komin með allar aðgerðir úr gömlu síðunni. Er eitthvað sem hefur gleymst ?
Ástæðan fyrir því að það eru ný comment efst og svo koma kommentin var að ég vil meina að það sé auðveldara að bæta við kommentum svoleiðis. Hvernig leggst svo nýja vefsvæðið í lýðinn ?
Mummi
over 1 year
Sælir
Nokkrar ábendingar:
Headerinn offset-tast í t.d. 1920 upplausn. Lendir lengra til vinstri en nauðsynlegt er.
"Fara til baka" er í h3 eins og fyrirsögnin, það fyrrnefnda ætti að vera í minna letri.
Afhverju setur þú ekki doctype á html-ið ?
Mættir nýta þér title tag-ið í html-inu, hefur mikið að segja uppá t.d. seo.
Dagafjöldin frá því viðkomandi pistill var skrifaður mætti vera á íslensku.
Þetta dugir í bili.
Trausti Þór
over 1 year
@Mummi, gaman að heyra loksins í þér. Þetta eru allt saman atriði sem ég veit af, nema að logoið er nákvæmlega þar sem ég vil hafa það, aðeins meira til vnstri en fyrir miðju. Ég varð að breyta síðunni fljótt og svona smáatriði gefa það í ljós