Höfundur : Elsa Þóra Eggertsdóttir, skrifað over 1 year
Ég hef ekki getað sett inn myndir í margar vikur! Trausti var eitthvað að fikta við síðuna og eyðilagði allt. Eftir mikið tuð þá lagaði hann þetta loksins. Mun ég því eyða rigninardögunum í sumar í að setja inn myndir. Ég á fullt af myndum ;)
Ósk var lasin fyrir rúmri viku síðan. Hún var eitthvað að kvarta yfir eymslum í hálsinum og fékk að vera heima mið og fim því mamman var í fríi. Ósk heimtaði að Íris Rós væri heima líka svo hún gæti leikið við einhvern. Á föstudeginum var þeim svo hent í leikskólann aftur, engin náð og miskun á þessu heimili ;) Á laugardeginum vaknar hún svo með bólgin háls og eymsli. Mamman neiddist til að viðurkenna að barnið væri lasið og fékk tíma hjá læknavaktinni rétt eftir hádegi. Hún var með streptokokkar. Pensilín í nokkra daga ;)
Ég byrjaði í 3 vikna sumarfríi á föstudaginn :) :) :) :) :) Ekkert smá gaman! Við ætlum ekki að fara neitt sérstakt. Ef veður er gott þá verður farið í Tusenfryd, Amadeus dyrepark, námuna rétt hjá Minnesund og til Osló. Ef veðrið verður leiðinlegt þá verðum við heima eða finnum eitthvað skemmtilegt sem er innandyra :)
HÆ! Vonandi heilsast öllum vel núna. Skemmtu þér vel í fríinu, finnur örugglega eitthvað skemmtilegt að gera! Bið að heilsa dúllunum þínum............knús þín Maja