Bóel kom til okkar á miðvikudaginn. Svaka fjör! Stelpurnar hlupu í fangið á henni á flugvellinum, frænkan bráðnaði alveg ;)
Í gær (fimmtudag) var farið út á vatnið í skóginum. Stelpurnar fengu armkúta og busluðu í köldu vatninu í hátt í 3 tíma! Það var kalt í vatninu en þær létu það ekki á sig fá heldur fóru alltaf lengra og lengra. Þær systur voru sko ekkert hræddar við vatnið. Það var ekki auðvelt að fá þær heim ;)
Í dag (föstudag) fórum við svo í Tusenfryd. Stelpurnar eru spennufíklar!!! Þær vildu fara í öll tækin og minnst 2svar í hvert! Mamman slapp voða vel en þurfti að fara í 2 tæki og var orðið frekar mikið bumbult og illt í hausnum á eftir. Bóel þurfti að fara 2 ferði í kolkrabbann, eina með hvora stelpu. (mamman gat ekki meira) Ósk hafði spurt hana hvort hún gæti ekki farið í 2 ferðir með hvora en Bóel hafði tilkynnt að þá myndi hún æla! ;) Það kom rigning af og til í dag en stelpunum var sko alveg sama, þær fóru bara í regnslána sína og héldu áfram að suða um að fara í tækin ;)