Það er nákvæmlega ekki neitt að gerast hjá okkur þessa dagana!
Ég fór reyndar í dag og keypti 2 rennihurðir yfrir fataskápinn í ganginu. Keypti ekki innmatinn en það kemur seinna. Hurðarnar voru á tilboði og það tekur 3 vikur að fá þær ;)
Íris Rós byrjar á stórubarnadeildinni á mánudaginn og er hún frekar mikið spennt! Hún tilkynnir oft á dag að hún geti hitt og þetta því hún sé orðin svo stór stelpa ;) Hún þykist meira að segja geta skeint sig sjálf!
Ósk hefur sagt það í nokkuð langan tíma að hún vilji ekki göt í eyrun fyrr en hún verði 6 ára, það nýjasta er að hún vill fá göt núna! Hún vill ekki bíða þangað til hún verður 6 ára. Við sjáum til hvað gerist er ég verð í fríi næst ;)