Höfundur : Elsa Þóra , skrifað over 1 year
Þá er Íris Rós búin að vera eina viku á Grevlingbo (stóru barna deildin). Það er búið að vera svoooooo gaman að það er einsog hún hafi alltaf verið þarna ;) Ég sótti hana 4 sinnum þessa vikuna og í hvert skipti þá fékk ég skilaboð um að Íris Rós hefiði dottið!?!?! Ég held hún hafi verið svo áköf að hún gleymdi sér smá er hún var að leika ;)
Þeim systrum semur ennþá vel!? Það vantar ennþá nokkra krakka og því er Ósk ekki komin með leikfélagana sína ennþá. Reyndar fóru 2 stelpur yfir á aðra deild, deild sem er úti 4 daga vikunnar allt árið. Þær systur geta ekki verið á þeirri deild sökum astma. Með eins kaldann vetur og það var síðasta vetur þá hefði Ósk þurft að skipta um deild.
Íris Rós hætti að taka astmalyfin í lok júní en hún þurfti að byrja aftur í gær (föstudag) :( Það er greinilega eitthvað í loftinu sem hún þolir ekki eða fer illa í hana. Það á kanski að gera ofnæmispróf á henni í haust eða eftir 1 ár, sjáum til hvað læknirinn segir er við hittum hann í október.
Annars er bara allt voða jollí. Fyrirtækin hjá Trausta virðast ganga vel, allavegana er hann alltaf inni í tölvuherbergi, spurning með að setja sófa þangað inn svo hann geti lúllað þar líka ;)
amma
over 1 year
Sælt veri fólkið gott að allt er í góðu hjá ykkur en æj æj Íris litla samt er hún alltaf svo kát, glöð og dugleg. Sakna frétta af ykkur og frétta. Bestu kveðjur knús og klem frá ömmu og afa