Höfundur : Trausti Þór Jóhannsson, skrifað over 1 year
Þegar ég var rétt norðan megin við 30 árin, tók ég eins og margir upp á því að fara að lifa hollara lífi. Minnka óhollustuna, éta múslí og mjólk í morgunmat, hafragraut og brauð með osti.
En heilsan versnaði. Vanlíðan og veikindi skók mann. En mótbárur eru bara til að yfirvinnast, ekki satt ? Þetta bara herti mann upp. Bara meiri hollusta, og ekki bara í morgunmat og hádeigismat. Meiri hollusta. Brátt fór maður að hlaupa í skóginum sem Tarzan væri. Hvert brautametið slegið, en heilsan versnaði og versnaði og hreint út sagt, kvillarnir urðu alvarlegri. Þetta er bara lífið eftir þrítugt hugsaði maður.
Bara meiri hollusta. Verri varð heilsan.
Ég fattaði svo fyrir um viku að heilsan eftir 30 væri bara frábær ef maður tapaði ekki vitinu og að fatta hluti. Fyrir slysni fékk ég mér ekki morgunmat í nokkra daga. Skyndibitamat svo í hádeiginu en ekki hollustu vörur.
Fékk mér svo hollan morgunmat og þá rann upp fyrir mér skyndilega á harðahlaupum á ákveðinn stað. Öll þessi hollusta var að kála mér.
Ég þoli ekki mjólk og mjólkur vörur. Ég er núna að fatta að alveg ótrúlega mikið af því sem ég kunni best að meta, hrísgrjónagrautur sem er alveg í uppáhaldi, pönnukökur, vöfflur og vanillubúðingur er alveg stórhættulegt.
Það er ekki heilsan sem fer um þrítugt, það er "fattið" sem hverfur :)
Elsa Thora
over 1 year
Er ekkert smá fegin ad thurfa ekki ad búa til grjónagraut handa thér lengur :)
Sandra
over 1 year
Ekki örvænta. Elsa Þóra býr bara til graut úr laktosfrírri mjólk. Eða er það próteinið sem er að stríða þér?
Trausti Þór
over 1 year
Veit ekki enn hvað er að hrjá mig nákvæmlega, á eftir að fá niðurstöður en það er alveg pottþétt að mjólkur vörur koma þar að. Hvort það er lactose óþol eða mjólkur ofnæmi á eftir að koma í ljós