Höfundur : Elsa Þóra , skrifað over 1 year
Ég bauð Trausta á tónleika með Jean Michel Jarre. Þetta er ekki tónlist sem mér finnst skemmtileg en ég vildi nú vera góð við kallinn svona einu sinni ;) Það er búið að rigna meir eða minna í nokkra daga og var útlitið ekki jákvætt fyrir tónleikana. En á tónleikana skyldi Trausti fara! Hrönn og Garðar voru svo æðisleg að þau leyfðu stelpunum að vera hjá sér. Við Trausti fórum út að borða og er við vorum að labba á tónleikana þá rigndi ekki mikið en samt. Við keyptum okkur plastpoka til hafa yfir okkur og sáum við ekki eftir þeim pening því vá hvað það rigndi mikið!! En um leið og kallinn mætti á sviðið þá hætti að rigna!??!?! Þetta voru ágætir tónleikar fyrir utan tónlistina hehe. Það var rosa flott að sjá leysigeislana í loftinu og í trjánum. Við sum lögin voru líka flugeldar, kom hrikalega vel út. En núna er ég búin að fara á tónleika með Jean Michel Jarre og þarf aldrei að gera það aftur!
Stelpunum fanst æði að fara í pössun. Ósk vildi alveg vera lengur en Íris Rós var alveg tilbúin til að koma heim. Fljótlega eftir að við komum heim þá sofnaði Íris Rós í sófanum, var greinilega alveg búin á því ;)
Ef ég tel rétt þá var þetta í 6 skipti sem Ósk gistir hjá öðrum.
Sandra og Gulli 2 svar
Vala og Raymond 1
Marit 2 svar
Baldur og Heiðbjört 1 (reyndar sváfu þær heima hjá sér)
Endilega leiðrétta mig ef ég man vitlaust
Vala
over 1 year
Já maður leggur greinilega ýmislegt á sig fyrir ástina;) En ég verð alveg að viðurkenna það að ég hef ekki hugmynd hver þessi maður er eða hvernig tónlist hann spilar/syngur eða hvað hann nú gerir;)
Jú þær gistu hjá okkur einu sinni þannig að það er allavega rétt;)
Sigríður Þóra
over 1 year
hehemm ..ég man nú óljóst eftir að hafa svæft þær báðar!! :Þ
Elsa Þóra
over 1 year
Það hafa margir svæft þær en fáir haft þær yfir nótt þannig að foreldrarnir fái að lúlla lengi ;)