Við fórum að versla í gær því Ósk er búin að vaxa uppúr nærri öllum peysunum sínum!?!? Einnig voru keyptir náttkjólar og buxur en Ósk vill helst ekki sofa í náttfötum.
Við keyptum svo fóðruð stígvél til að nota í haust/vetur og fengust bleik handa Ósk en svört handa Írisi Rós. Henni virðist vera alveg sama að hafa fengið svört ;)
Ósk er búin að segja það í langan tíma að hún vilji fá göt í eyrun er hún verði 6 ára. Allir sáttir við það og það ekki meira rætt. Svo í vor/snemma sumars tilkynnti Ósk að hún nennti sko ekki að bíða eftir því að verða 6 ára til að fá göt í eyrun! Eyrnalokka vildi hún núna!!! Ég lét hana suða svolítið lengi til að vera viss um það að hún vildi göt og lét ég svo verða af því í gær að fara á stofu. Við fengum tíma klukkutíma seinna. Ósk var voða spennt og hlakkaði mikið til. Er við mættum svo klukkutíma seinna spurði hún mömmu sína hvort þetta væri vont, mamma sagði að þetta gerði smá vont en þetta væri einsog að fá sprautu hjá lækninum. Væri smá vont en batnaði mjög fljótt. Ósk tilkynnti þá móður sinni að hún væri hætt við?!!? Mamman hélt nú ekki hún skyldi sko setjast í stólinn og sjá hvað ætti að gera. Allur undirbúningur var svaka spennandi og vildi hún ekki hætta við alveg þangað til búið var að skjóta í fyrsta eyrað!! Þá komu tárin og smá grátur. Þetta var vont!! Stelpan spurði hana hvort hún vildi ekki fá í hitt eyrað en Ósk sagði nei. Hún vildi ekki fá eyrnarlokk í hitt eyrað! Stelpan fór að spyrja hana um leikskólann og dreyfa huga hennar en það var ekki alveg að ganga svo mamman setti upp herforingjasvipinn og tilkynnti stelpunni að skjóta aftur. Ég sagði Ósk að halda í hendina mína og hélt ég hausnum á henni kjurrum og skipaði stelpunni að skjóta. Stelpan ætlaði eitthvað að telja upp á 3 en ég skipaði henni bara að skjóta og ljúka þessu af. Ósk fór að sjálfsögðu að grenja og kvarta yfir því hversu vont þetta var en um leið og ég fór að borga og pabbi hennar og Íris Rós mættu þá var allur sársauki gleymdur og bara verið að monta sig yfir flottu nýju eyrnarlokkunum ;)
Er við mættm í leikskólann í morgun þá sátu allir krakkarnir í hring á gólfinu og voru að undirbúa daginn. Ósk labbaði allan hringinn og sýndi ÖLLUM eyrnarlokkana sína!!! Ekkert smá stolt ;)