19 ágúst þá var ég heima með Írisi Rós því hún var með hita og smá kvef. Við gáfum henni hitastillandi og varð hún skárri við það en hún hafði kvartað smá yfir verki í eyrum og var ekki alveg í formi en hún var með nærri 39 stiga hita er hún vaknaði. Er stíllinn hætti að virka seinnipartinn þá var hún í fanginu mínu og var mikið á brölti, var erfitt að koma sér fyrir. Hún sofnaði að lokum og svaf í nærri klukkutíma. Er hún vaknaði þá var hún ennþá með 39.2 í hita og búið var að leka vökvi úr eyranum hennar! Hringdi ég þá í læknavaktina og fékk að mæta með hana og fékk hún sýklalyf eftir að það kom í ljós að það hafði komið gat á hljóðhimnuna hennar. Hún fékk sýklalyf :( Hún fer svo til læknis 5 okt til að athuga hvort allt hafi ekki gróið rétt og í lagi sé með heyrnina. Það lak líka úr eyranu um nóttina en hún varð miklu skárri eftir að búið var að leka í fyrsta skiptið. Greinilega búin að losna við verkina.