Höfundur : Elsa Þóra , skrifað 4 months
Stelpurnar áttu tíma fimmtudaginn 22 sept hjá astmalækninum og var Ósk ennþá hóstandi og ég og Trausti vorum byrjuð að hósta. Ég hafði mætt í vinnu á mánudeginum og viðskiptavinirnir höfðu óskað mér góðs bata er ég var búin að hjálpa þeim!? Þannig að ég var í fríi á þriðjudeginum ;) En aftur að astmalækninum :) Ég spurði hann hvað í and... það væri sem fjölskyldan hefði fengið. Það væri ekki eðlilegt að öll fjölskyldan væri hóstandi og í slæmu formi. Þannig að það var tekin prufa af Ósk. Hann ráðlagði mér og Trausta að fara til heimilislæknisins og láta taka prufu af okkur líka. Við Trausti fórum til læknisins og var tekin prufa og við fengum sýklalyf. Viku seinna hringdi astma læknirinn í mig og tilkynnti mér að Ósk væri með kíghósta!!! Sýklalyfin sem hún hafði fengið fyrr í september virka á kíghósta svo hún þurfti ekki að fara á ný sýklalyf. Það kom ekki neitt út úr prufunum hjá okkur Trausta en astmalæknirinn vildi meina að við værum með kíghósta líka og virkuðu sýklalyfin sem við fengum viku áður á kíghósta. Ég var send í 4 daga veikindafrí er við fengum sýklalyfin, læknirinn vildi meina að ég ætti að hugsa um samstarfsfólk mitt og viðskiptavini ;)
Ósk er búin að vera að hósta mikið og ljótum hósta þar sem hún kúgast en hún er farin að hósta minna og minna. Hún er farin að sofa alla nóttina, hóstar smá á kvöldin og á morgnana en alltaf minna og minna.
Trausti er farinn að hósta minna. Hann fór að þjálfa í gær og hóstaði smá í byrjun en svo ekkert.
Allir mínir samstarfsmenn eru farin að ryfja upp fyrstuhjálpar kunáttu sína ;) Ég hef hóstað og kúgast og ofandað þannig að ég held ég sé að missa andann/kafna en svo er ekki. Ég er farin að sofa á nóttunni og farin að hósta minna.
Íris Rós er byrjuð að hósta en hún er síðust í röðinni að fá þetta helvíti!!! 19 ágúst þá sprakk hljóðhimnan í vinstar eyranu hjá Íris Rós og fór hún til læknis 5 okt til að athuga hvort hljóðhimnan hefði gróið rétt. Deginum áður var hún komin með 39.9 í hita og er hún mætti til læknisins 5 okt þá var hún með 40.3!!!! Ekki var hægt að skoða eyrað almennilega því það var fullt af eyrnarmerg!! Aðfaranótt miðvikudags kvartaði Íris Rós yfir því að henni væri illt í eyranu en er ég kom við það þá var allt í lagi en hún fékk stíl til að hún gæti sofnað aftur. Er hún vaknaði í morgun þá var eyrnarmergun á eyranu. Hljóðhimnan sprakk aftur!!! Hún vildi endilega fara í leikskólann og fékk hún það en þau lofuðu að hringja ef það væri eitthvað að.
Ég er orðin smá leið á veikindum fjölskyldunnar þetta haustið!!! En astmalæknirinn lofðai því að þetta yrði búði fyrir jól ;) Vonandi hefur hann rétt fyrir sér?!?!