Logo

Velkomin heim til okkar

Fara til baka

Hvenær á að flytja heim aftur ?

Höfundur : Trausti Þór Jóhannsson, skrifað about 1 month
Þessi spurning er spurð í hvert skipti sem ég hitti fólk sem enn býr á Íslandi. Þetta er frekar stór spurning því ég veit ekki svarið.

Það er mjög margt sem kemur inn í þetta. Ef við byrjum á því yfirborðskennda, húsið okkar. Við erum búin að búa í þessu húsi í 8 ár, við erum búin að endurbyggja það að innan, taka það alveg í gegn. Það má alltaf segja að þvottahúsið eða herbergin séu eftir, þessi eltingaleikur klárast aldrei. Það er búið að búa til fallegan pall úti. Við erum búin að koma hlutunum fyrir eins og við viljum.

Svo má taka það fjárhagslega. Við erum með húsa lán sem greiðist jafnt og þétt niður um þá upphæð sem greidd er inn á lánið. Lánið er með undir 5% vöxtum. Þegar húsið hækkar í verði, þá lækka lánin.

Þetta er mjög góður kostur að eiga við. Hérna sveiflast hlutirnir ekkert.

En svo er það tengingar hlutinn. Það er eitthvað við þetta sker út í ballarhafi. Það er eitthvað sem tengir mann. Er það vonda veðrið ? Rokið ? Snjórinn ? Kannski eitthvað af þessu sem gerir það að verkum að maður fær tilfinninguna að maður sé heima. Svo er það ættin. Bæði ég og Elsa Þóra eigum svakalega stóra fjölskyldu, uppfullu af góðu fólki.

Við vorum í heimsókn hjá Hafrúnu og Kristjáni. Stelpurnar okkar neita núna að fara aftur til Noregs nema Hafþór komi örugglega í heimsókn því hann sé svo skemmtilegur.

Auðvitað missir maður úr við að búa svo langt frá öllum ættingjum. Það er heil kynslóð sem maður þekkir varla sem er að rísa upp. Einstaklingar sem voru börn þegar maður flutti út og eru núna jafnvel að flytja að heiman.

Svo það veraldlega. Hvað á maður að vinna við ? Ég hef verið ákaflega heppinn í útlöndum, ég hef bara unnið við það sem er skemmtilegt. Ég hef getað unnið við tækni sem er hreinlega ekki í notkun á Íslandi. Það eru ákveðnir hlutir sem mig langar ekkert að vinna með og nær eingöngu er það þessir hlutir sem eru í notkun. Það er líka hægt að vinna í útlöndum og búa á skerinu. Ég þekki nokkra sem gera slíkt. Þetta er ákaflega þreytandi og maður er hreinlega aldrei heima hjá sér og er lengi í burtu í einu. Svo má ekki gleyma smæð markaðarins. Það er ekki mikið í boði. Eftirspurnin er meiri en framboðið. En er skemmtilegt í boði ? Ég hreinlega veit það ekki. Manni finnst þetta vera mikið af því sama og árið 2000 þegar maður flutti út vegna þess að umhverfið var mjög svo óspennandi.

Ég get ekki neitað að það er eitthvað sem togar í mig, það er eitthvað sem segir manni að maður sé búinn að vera nógu lengi í burtu.

Kannski er það bara eitthvað flökkueðli í manni sem segir að maður sé búinn að vera nógu lengi í Noregi en er ekkert að segja manni að fara heim aftur. Heimurinn er stór og maður er ekki að yngjast.

Ég held að það eina sem maður getur sagt í þessu er

Ég hreinlega veit ekki

Þessi frétt er með 1 komment






Vala

about 1 month

Ég veit, ég veit;)


Tenglar
Nýjar myndir
Img_5190_thumb Img_5189_thumb Img_5188_thumb Img_5187_thumb Img_5186_thumb
Ýmsar myndir
Img_2039_thumb Img_2681_thumb Hpim0341_thumb Img_0001_thumb Hpim1752_thumb
Nýjustu fréttirnar
Nýjustu kommentin
Nýjustu myndir með kommentum
Img_5099_thumb
Elsa Þóra
Myndasmiðnum finnst bara svo gaman að taka myndir ;)

Img_5104_thumb
mamma og amma
Einnig þessa sætu skólastelpu

Img_5105_thumb
mamma og amma
Líka þessa sætu krúsu ;)

Img_5107_thumb
mamma
Og ég á þennan sæta strák ;))) (en ekki alveg ein)

Img_5076_thumb
Sigríður Þóra
Tungan er bráðnauðsynleg til að gera þetta "move"!! Reyndu bara að setja á þig maskara án þess að opna munninn smá!! HAHAHAH ;) ;)

Img_5120_thumb
Sigríður Þóra
HAHAHA :)

Img_5049_thumb
Elsa Þóra
Amma Ósk gaf henni

Img_5061_thumb
Sigríður Þóra
Skvísur!! ;)

Img_4972_thumb
Sigríður Þóra
Stóra stelpan :D

Img_5028_thumb
Elsa Þóra
Passaðu þá að koma er það fer að hlýna svo hægt sé að sitja úti ;)

Img_4577_thumb
Bóel
Krútt :)

Img_5020_thumb
Elsa Þóra
hehe ég líka ;) Búin að prufa að hafa pullu og sitja og lesa bók, það var frekar ljúft ;)

Img_3903_thumb
Elsa Þóra
Hún er bara upptekin við að borða

Img_3885_thumb
Elsa Þóra
Takk takk. Þeim finnst báðum voða gaman að hjálpa til. Ósk elskar að fara út með ruslið hehe

Img_3860_thumb
Elsa Þóra
Vertu ekki að neita því sem vitað er hehe

Img_3840_thumb
Elsa Þóra
Dugleg einsog móðir sín ;)

Img_3862_thumb
Sigríður Þóra
Maður notar bara það sem hendi er næst!! ;) Úrræðagóður drengur bara heheh

Img_3823_thumb
Sigríður Þóra
HAHAHA

Img_3800_thumb
Elsa Þóra
jamm hún fer líka í vist í vesturbæinn eftir nokkur ár ;)

Img_3767_thumb
Elsa Þóra
Já endilega

Img_3754_thumb
Elsa Þóra
Já alveg rétt hafmeyju mamman ;)

Valid XHTML 1.1